Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 15:01 Allan Saint-Maximin yfirgaf Mexíkó eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði. Hann segist sjálfur hafa lært að berjast gegn árásum en það á ekki við börnin hans. Getty/Hugo Rivera Fyrrverandi stjarna enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle hefur yfirgefið Club América í Mexíkó eftir að hafa haldið því fram að börn hans hafi orðið fyrir kynþáttaníði.
Allan Saint-Maximin leitar sér nú að nýju félagi en hann náði gagnkvæmu samkomulagi við forráðamenn Club América. Fyrr í vikunni birti hinn 28 ára gamli Frakki færslu á samfélagsmiðlum um að ráðist hefði verið á fjölskyldu hans. Saint-Maximin hefur einnig leikið með Al Ahli og Fenerbahce síðan hann yfirgaf St James' Park árið 2023 og skrifaði á Instagram: „Vandamálið er ekki húðlitur þinn, heldur liturinn á hugsunum þínum.“ View this post on Instagram A post shared by Footballing Gods • Football • Fútbol • Soccer (@footballinggods) „Það er verið að ráðast á mig, ekkert mál – ég óx úr grasi, ég lærði að berjast gegn árásum. En það er eitt sem ég mun aldrei umbera og það er að ráðist sé á börnin mín. Að vernda börnin mín er forgangsatriði mitt og ég mun berjast fyrir því að þau séu virt og elskuð, óháð uppruna þeirra eða húðlit. Hatur og mismunun eiga engan stað í samfélagi okkar,“ skrifaði Saint-Maximin. „Þannig að til þeirra sem dirfðust að skipta sér af börnunum mínum, segi ég ykkur: þið gerðuð mistök. Ég mun alltaf berjast fyrir því að vernda mína og það er engin manneskja eða hótun sem mun hræða mig,“ skrifaði Saint-Maximin. Hvorki leikmaðurinn né Club América hafa gefið nánari upplýsingar um atvikið. Club América sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið þar sem sagði: „Við ítrekum harða fordæmingu okkar á hvers kyns mismunun og/eða ofbeldi sem brýtur gegn mannlegri reisn, bæði innan vallar sem utan.“ „Við lýsum yfir fullum stuðningi við Allan Saint-Maximin og fjölskyldu hans sem njóta stuðnings allra sem eru hluti af þessari stofnun.“ Þjálfarinn André Jardine bætti við á laugardag: „Varðandi Maximin, þá er hann frábær leikmaður, hann hefur hæfileika til að spila í hvaða deild sem er í heiminum. Við óskum honum alls hins besta.“ View this post on Instagram A post shared by Allan SAINT-MAXIMIN (@st_maximin)
Fótbolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira