Fótbolti

Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjár­magnar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Montagliani og Infantino á HM í sumar. Kastast hefur í kekki þeirra á milli síðan þá.
Montagliani og Infantino á HM í sumar. Kastast hefur í kekki þeirra á milli síðan þá. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images

Gianni Infantino, umdeildur forseti FIFA, var beðinn um að mæta ekki á fótboltamót ungmenna sem fer fram í Lýðveldi Dóminíkana um helgina. Óttast var að viðvera hans myndi draga neikvæða athygli að mótinu.

Infantino barst bréf frá Victor Montagliani, forseta CONCACAF knattspyrnusambandsins, sem óskaði eftir því að forseti FIFA myndi ekki mæta á mótið eins og fyrirhugað hafði verið. Um er að ræða ungmennamót fyrir leikmenn undir fjórtán ára sem er fjármagnað af FIFA.

Sky Sports greindi fyrst frá málinu í morgun. The Athletic hefur nú tekið undir þá umfjöllun og kveðst hafa bréfið sem Montagliani sendi Infantino undir höndum.

„Ég tel að í ljósi stjórnarkreppunnar sem ríkir hjá FIFA vegna umdeildrar tillögu þinnar um FIFA Forward Enterprise muni fjölmiðlar einblína á þetta ástand, sem mun því miður draga verulega úr umfangi unglingakeppni CFU,“ stóð í bréfi Kanadamannsins samkvæmt The Athletic.

Montagliani er mögulegur kandídat í forsetaframboð gegn Infantino á næsta ársþingi FIFA og einn af þeim sem skrifaði undir opið bréf þar sem lýst var yfir vantrausti á forsetanum.

Infantino er samt mættur til dóminíkanska lýðveldisins og fundaði með Jose Deschamps, forseta knattspyrnusambandsins þar í landi, í gær ásamt öðrum stjórnmálamönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×