Íslenski boltinn

Njarð­víkingar stöðvuðu sigur­göngu Húsvíkinga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Oumar Diouck hefur skorað sex mörk í síðustu fjórum leikjum Njarðvíkur.
Oumar Diouck hefur skorað sex mörk í síðustu fjórum leikjum Njarðvíkur.

Njarðvík styrkti stöðu sína í baráttunni um að komast í umspil um sæti í Bestu deild karla með 4-0 heimasigri á Völsungi í 20. umferð Lengjudeildarinnar í dag.

Njarðvík tapaði fyrir ÍR, 3-1, í síðustu umferð en komst aftur á sigurbraut í dag. Njarðvíkingar hafa unnið fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum. 

Njarðvík er í 5. sæti með 35 stig, jafn mörg og HK, sem er í 4. sætinu, en átta stigum á undan Gróttu, sem er í 6. sætinu en á leik til góða.

Bragi Karl Bjarkason og Oumar Diouck skoruðu tvö mörk hvor fyrir Njarðvík í dag. Sá síðarnefndi hefur verið iðinn við kolann að undanförnu en hann hefur skorað tvennu í þremur af síðustu fjórum leikjum Njarðvíkinga.

Fyrir viðureign dagsins hafði Völsungur unnið þrjá leiki í röð. Liðið er í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með tuttugu stig, einu stigi frá öruggu sæti.

Í síðustu tveimur umferðunum mætir Völsungur ÍR á heimavelli og Gróttu á útivelli.

Njarðvíkur bíða leikir gegn Leikni á útivelli og Aftureldingu á heimavelli.

Upplýsingar um markaskorara og gang mála eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×