Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. janúar 2026 13:00 Hákon krónprins tjáði sig um mál stjúpsonar síns. Þessi ljósmynd er frá árinu 2025 þegar Hákon heimsótti Svalbarða. EPA Hákon, krónprins Noregs, og Mette-Marit krónprinsessa verða ekki viðstödd réttarhöld Mariusar Borg Høiby, sonar Mette-Marit. Réttarhöldin hefjast innan viku en meðal 32 ákæruliða sem Marius á yfir höfði sér eru fjórar nauðganir gegn fjórum konum. „
Auðvitað hugsum við mikið til þeirra sem málið snertir. Þetta er eitthvað sem hefur áhrif á þau, fjölskyldur þeirra, þá sem elska þau. Við sýnum þeim umhyggju,“ sagði Hákon samkvæmt norska ríkisútvarpinu. Sjá nánar: Mál Mariusar Borg Høiby Á blaðamannafundi í morgun tjáði krónprinsinn sig um mál stjúpsonar síns sem hefur verið ákærður fyrir fjölda brota, þar á meðal kynferðis- og ofbeldisbrot. Hann greindi frá því að hvorki hann né Mette-Marit, móðir Mariusar, verði viðstödd réttarhöldin sem hefjast í næstu viku. Sjálfur sinnir Hákon opinberum erindum en Mette-Marit hyggst ferðast erlendis í frí. Hún hefur ekki ákveðið hversu lengi fríið mun vara. Krónprinsessan fór í veikindaleyfi í september vegna lungnasjúkdóms. Hákon tekur einnig fram að fjölskyldan muni ekki tjá sig neitt um málið á meðan réttarhöldin standa yfir. „Marius Borg Høiby er ekki hluti af konungsfjölskyldunni, svo hann er frjáls í þeim skilningi. En við elskum hann auðvitað og hann er mikilvægur hluti af fjölskyldunni okkar,“ sagði Hákon. „Og hann er norskur ríkisborgari. Vegna þessa hefur hann sömu skyldur og allir aðrir en líka sömu réttindi.“
Noregur Mál Mariusar Borg Høiby Kóngafólk Haraldur V Noregskonungur Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira