Innlent

Ungir Sjálf­stæðis­menn fengu sér á­fengi í ferð með Vil­hjálmi og fóru svo á kjör­stað

Eiður Þór Árnason skrifar
Vilhjálmur Árnason, þingmaður og frambjóðandi í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, ásamt ungum Sjálfstæðismönnum í Helguvík í gær.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður og frambjóðandi í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, ásamt ungum Sjálfstæðismönnum í Helguvík í gær. Logi Þór Ágústsson

Heimir, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, kom við á kjörstað eftir að stór hópur ungmenna á þeirra vegum fór í vísindaferð ásamt Vilhjálmi Árnasyni, ritara Sjálfstæðisflokksins og frambjóðanda í Reykjanesbæ. Boðið var upp á áfengi í ferðinni.

Logi Þór Ágústsson, formaður félagsins, og Hermann Borgar Jakobsson varaformaður eru nánir stuðningsmenn Vilhjálms sem er jafnframt þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Logi segir að ferðin hafi verið haldin af sér og Hermanni „fyrir Vilhjálm

Hópurinn lagði af stað frá kosningamiðstöð Vilhjálms en í vísindaferðinni í gær voru fyrirtæki og uppbyggingarsvæði heimsótt í Helguvík. Logi segir að ferðin hafi verið haldin af sér og Hermanni „fyrir hann Vilhjálm“ en í kynningarefni var skýrt tekið fram að það væri Vilhjálmur sem væri að bjóða ungum Sjálfstæðismönnum í vísindaferð.  

Skjáskot af Facebook-viðburði sem Logi Þór Ágústsson, formaður Heimis, var meðal annars skráður fyrir.

Áfengið í ferðinni hafi verið í boði hans og varaformannsins og fólk sem neytti veiganna „með lögaldur eftir minni bestu vitund.“ Samkvæmt lögum Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS) er ungmennum niður í fimmtán ára aldur heimilt að skrá sig í undirfélög á borð við Heimi. 

Vilhjálmur Árnason hefur ekki svarað fyrirspurn fréttastofu um málið.

Mikill fjöldi lagði leið sína í Helguvík ásamt Vilhjálmi sem sést hér fremst.Logi Þór Ágústsson

Gott að virkja ungt fólk

Logi segir að 52 ungir Sjálfstæðismenn hafi mætt í ferðina og rúta lagt af stað frá kosningamiðstöð Vilhjálms. Eftir heimsóknina í Helguvík hafi rúta komið við í Grófinni í Reykjanesbæ þar sem nú er hægt að greiða atkvæði í leiðtogaprófkjörinu í Reykjanesbæ en Vilhjálmur er þar einn þriggja frambjóðenda.

„Á leiðinni til baka úr Helguvík vildu nokkrir nýta tækifærið og kjósa utankjörfundar þar sem það var í leiðinni. Rúmlega 10 manns af þeim 50 gerðu það,“ segir Logi. „Það finnst mér frábært enda nauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að virkja ungt fólk.“

Hjólaði í forvera sinn

Vísir hafði upphaflega samband við Guðna Ívar Guðmundsson sem er skráður formaður Heimis á vef SUS en sá upplýsti fréttamann um að áðurnefndur Logi væri nú búinn að taka við formennsku. Þegar fréttamaður hringdi í Loga til að spyrja hann um ferðina í gær vildi hann lítið segja í fyrstu og óskaði eftir skriflegri fyrirspurn. Í stað þess að svara fréttamanni beint birti hann í kjölfarið færslu um málið á Facebook-síðu sinni þar sem hann sakaði Guðna, fyrrverandi formann, um að siga fréttamanni á sig.

„Væntanlega í þeim tilgangi að gera [ferðina] tortryggilega og ná höggi á Vilhjálm Árnason,“ ritar Logi og segir áðurnefndan Guðna vera í kosningastjórn annars frambjóðanda í Reykjanesbæ.

Þess ber að geta að fréttamaður upplýsti Guðna ekki um efni erindisins áður en hann óskaði eftir því að komast í samband við sitjandi formann félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Logi hefur verið upplýstur um þetta en hann hafði ekki leiðrétt yfirlýsingu sína þegar fréttin fór í birtingu. 

Ungt fólk skundaði um uppbyggingarsvæðið í Helguvík í gær. Sumt þeirra var með áfengi við hönd. Logi Þór Ágústsson

„Ég mun ekki fóðra andstæðinga Sjálfstæðisflokksins eða stuðningsmenn annarra framboða – sem leggjast svona lágt – með efni með því að tjá mig frekar. Ég vona að aðrir frambjóðendur hafi ekki með beinum hætti komið að þessari ömurlegu árás á unga fólkið sem hefur áhuga á því að taka þátt í starfinu,“ segir Logi í færslunni.

Hann telur að um hafi verið að ræða eina fjölmennustu vísindaferð sem haldin hafi verið af ungu fólki í Reykjanesbæ.

Færslan sem formaður Heimis birti eftir að hann fékk fyrirspurn frá fréttamanni. Umræddur maður í kosningastjórn mótframbjóðanda Vilhjálms var skráður formaður félagsins.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×