„Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2026 07:02 Vincent Kompany var léttur á blaðamannafundinum í gær. Getty/S. Mellar Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Bayern München, sagðist hafa lært að halda ró sinni því hann vill ekki blóta og missa stjórn á skapi sínu fyrir framan börnin sín.
Gömul myndbönd með fyrrverandi fyrirliða Manchester City hafa komið honum í vandræði heima fyrir, eins og hann upplýsti á meðan hann undirbjó lið sitt fyrir leikinn gegn botnliði Augsburg í þýsku deildinni á Allianz Arena. Eitt af þeim var örugglega þegar hann lét íslenska landsliðsmanninn Jóhann Berg Guðmundsson heldur betur heyra það á æfingu hjá Burnley. Þegar Kompany var spurður hvenær hann yrði pirraður sagði hann á blaðamannafundi: „Börnin mín sáu það alltaf á YouTube þegar ég blótaði í ensku úrvalsdeildinni. Það setur mig ekki í sterka stöðu heima þegar ég er að ala þau upp og segja þeim hvað þau mega segja og hvað ekki. Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin,“ sagði Kompany. „En ég verð virkilega pirraður þegar við erum of hrokafull. Við verðum að vera sannfærð um hversu sterk við erum, og við vitum það nú þegar, en mér líkar ekki við óþarfa hroka. Ef við gerum minna en við eigum venjulega að gera, þá verð ég stundum pirraður,“ sagði Kompany. „Fyrir mér er þessi vinna svo mikilvæg, merki um virðingu gagnvart félaginu, gagnvart andstæðingunum. Þess vegna reyni ég að vera eins rólegur og mögulegt er,“ sagði Kompany. Bæjarar eru með ellefu stiga forskot á Borussia Dortmund á toppi þýsku deildarinnar, þótt þeir hafi þurft að koma til baka til að sigra bæði FC Köln og RB Leipzig í síðustu tveimur deildarleikjum sínum fyrir 2-0 sigurinn í Meistaradeildinni gegn Union St-Gilloise á miðvikudagskvöldið.
Þýski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira