Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Árni Sæberg skrifar 22. janúar 2026 16:20 Anna Rut Ágústsdóttir er nýr aðstoðarforstjóri Kviku. Forstjórinn, Ármann Þorvaldsson, mun einbeita sér að stefnumótandi verkefnum eftir ráðningu hennar. Kvika banki Kvika banki hefur ráðið Önnu Rut Ágústsdóttur í starf aðstoðarforstjóra bankans. Anna Rut mun sinna starfinu samhliða hlutverki sínu sem framkvæmdastjóri rekstrar- og þróunarsviðs bankans og þannig styðja við áframhaldandi stjórnun og framkvæmd stefnumarkandi verkefna bankans.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Anna Rut hafi starfað innan Kviku samstæðunnar frá stofnun bankans árið 2015 og hjá forverum hans frá árinu 2007. Hún búi yfir víðtækri reynslu af starfsemi bankans og hafi sinnt fjölbreyttum störfum innan samstæðunnar. Komið víða við innan bankans Áður en hún tók við starfi framkvæmdastjóra rekstrar- og þróunarsviðs árið 2022 hafi hún verið forstöðumaður fjármála og rekstrar hjá Kviku eignastýringu. Þar áður hafi hún gengt ýmsum lykilhlutverkum, meðal annars sem forstöðumaður á skrifstofu forstjóra og forstöðumaður viðskiptatengsla hjá Kviku auk þess sem hún hafi um árabil starfað á sviði áhættustýringar og eignaumsýslu. Anna Rut sé með BSc gráðu í viðskiptafræði og MCF gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík og hafi lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Ármann einbeitir sér að samrunaviðræðum „Ráðning Önnu Rutar er liður í því að styrkja skipulag bankans og tryggja samfellu, skýra verkaskiptingu og öfluga framkvæmd á mikilvægum tímamótum í starfsemi Kviku banka. Með ráðningunni skapast aukið svigrúm fyrir Ármann Þorvaldsson, forstjóra Kviku, til að einbeita sér að stefnumótandi verkefnum, þar á meðal samrunaviðræðum við Arion banka, en forviðræður við Samkeppniseftirlitið standa enn yfir.“
Kvika banki Fjármálafyrirtæki Vistaskipti Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira