Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. janúar 2026 07:55 Morðið á Abe vakti athygli út um allan heim. Getty/Universal Image Group Tetsuya Yamagami, maðurinn sem skaut Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japan, til bana á fjöldafundi í Nara árið 2022, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Skotárásin kom mörgum í opna skjöldu, þar sem byssuglæpir eru afar fátíðir í Japan. Yamagami, 45 ára, játaði hins vegar að hafa orðið Abe að bana með heimasmíðuðu skotvopni. Ákæruvaldið sagði Yamagami verðskulda lífstíðardóm fyrir hinn alvarlega glæp. Verjendur hans sögðu hins vegar að Yamagami væri fórnarlamb „trúarlegrar misnotkunar“. Trúarákefð móður Yamagami er sögð hafa sett fjölskylduna á hausinn, þar sem hún gaf kirkjunni allar eignir sínar. Þá er Yamagami sagður hafa orðið reiður Abe þegar hann uppgötvaði tengsl forsætisráðherrans fyrrverandi við sama söfnuð og móðir hans tilheyrði. Yamagami sagði við réttarhöldin að upphaflega hefði hann haft í hyggju að beina reiði sinni gegn leiðtogum kirkjunnar. Svokölluð „Sameiningarkirkja“ var svipt stöðu sinni sem trúfélag í fyrra, eftir að dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að fylgjendur kirkjunnar hefðu verið narraðir til að veita fjármunum til hennar með hótunum um að trúarleg velferð þeirra væri í húfi. Þá hafði hún einnig sætt gagnrýni fyrir fjöldabrúðkaup, þar sem fjöldi brúðhjóna var gefinn saman á sama tíma.
Morðið á Shinzo Abe Japan Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira