Jón Erik skíðaði sig inn á Ólympíuleikana Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. janúar 2026 14:10 Jón Erik Sigurðsson er á leiðinni á Vetrarólympíuleikana í Mílanó og Cortina. SKÍ Jón Erik Sigurðsson er efstur íslenskra karla á nýjasta stigalista alþjóða skíðasambandsins og tryggði sér þar með sæti á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í næsta mánuði.
Þrír íslenskir keppendur höfðu nú þegar tryggt sér sæti á ÓL en spennan var gríðarleg í karlaflokki alpagreina, þar sem þrír skíðakappar kepptu um eitt laust sæti. Þeir voru allir að keppa á mótum í síðustu viku og um helgina sem skáru úr um hvort þeir kæmust inn. Á endanum varð Jón Erik Sigurðsson efstur á listanum í alpagreinum með 1578 stig, aðeins 54 stigum meira en Gauti Guðmundsson sem skoraði 1524 stig. Bjarni Þór Hauksson fylgdi þeim fast eftir en endaði með 1338 stig. Ísland fær boðsmiða á Vetrarólympíuleikana í gegnum kvótakerfið og samkvæmt reglum Skíðasambands Íslands verður Jón Erik því tilnefndur til þátttöku en formleg tilkynning mun berast eftir fund stjórnar SKÍ. Fær Hólmfríður Dóra grænt ljós á morgun? Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir varð efst, enda sú eina á listanum, í kvennaflokki í alpagreinum og verður því einnig tilnefnd. Hún er þó að glíma við meiðsli eftir að hafa brotið bein í sköflungi undir lok síðasta árs. Dagur og Kristrún byrjuð að undirbúa sig Dagur Benediktsson og Kristrún Guðnadóttir munu svo keppa fyrir hönd Íslands í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum en þau voru, líkt og Hólmfríður, þau einu á listanum. Dagur er kominn til Ítalíu að undirbúa sig og Kristún er í æfingabúðum í Noregi. Vetrarólympíuleikarnir í Mílanó og Cortina hefjast þann 6. febrúar og þeim lýkur þann 22. febrúar.
Skíðaíþróttir Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sjá meira