Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Samúel Karl Ólason skrifar 18. janúar 2026 07:49 Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, segir Donald Trump vera glæpamann og að draga þurfi Bandaríkin til ábyrgðar vegna mótmælanna í Íran. AP/Vahid Salemi Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, viðurkenndi í fyrsta sinn í ræðu sem hann hélt í gær að þúsundir hefðu látið lífið í mótmælum í Íran á undanförnum vikum. Sumir hefðu dáið á „ómennskan og grimmilegan“ máta. Hann kenndi þó Bandaríkjunum og Ísrael um allt saman. „
Þeir sem tengdust Ísrael og Bandaríkjunum ollu gífurlega miklum skaða og bönuðu nokkur þúsund manns á mótmælunum sem skóku Íran í meira en tvær vikur,“ sagði æðstiklerkurinn í ræðunni í gær, samkvæmt frétt Al Jazeera. Hann lýsti Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sem glæpamanni og sagði hann hafa haft beina aðkomu að mótmælunum, sem Khamenei kallaði „nýjustu and-Íran uppreisnina“. Enn fremur sagði Khamenei að ríkisstjórn Íran myndi ekki fara út í stríð við önnur ríki en ekki væri hægt að leyfa innlendum né erlendum glæpamönnum að komast hjá refsingu. Engar staðfestar tölur um dauðsföll í mótmælunum í Íran liggja fyrir en mannréttindasamtök sem starfrækt eru í Bandaríkjunum segja að minnsta þrjú þúsund hafi látið lífið. Einnig hefur verið áætlað að dauðsföllin gætu verið allt að tólf þúsund. Yfirvöld í Íran hafa sagt að um þrjú þúsund hafi verið handteknir vegna mótmælanna en talið er að þeir séu mun fleiri. Hlutar ræðu Khameneis hafa verið birtir á X en í ræðunni beindi æðstiklerkurinn reiði sinni ítrekað að Trump og sagði hann bera ábyrgðina á mótmælunum og dauðsföllunum í Íran. Meðal annars kallaði hann Trump glæpamann og sagði að draga þyrfti Bandaríkin til ábyrgðar. Yes, we extinguished the fire of the sedition, but that isn’t enough. The US must be held accountable.— Khamenei.ir (@khamenei_ir) January 17, 2026 Trump segir Khamenei sjúkan Í viðtali við Politico í gær sagði Trump að Kamenei væri „sjúkur maður“ sem hefði rústað Íran og drepið þúsundir manna. Kominn væri tími á nýja leiðtoga í Íran. Trump hafði ýtt undir mótmæli í Íran, eftir að þau hófust, og sagðist ætla að koma mótmælendum til aðstoðar. Þá hótaði hann hernaðarinngripi ef mótmælendur yrðu drepnir af öryggissveitum en hann greip þó ekki til aðgerða að öðru leyti en að beita refsiaðgerðum gegn embættismönnum. Þá sagðist hann hafa hætt við að gera loftárásir á Íran eftir að honum hafi borist loforð um að ekki stæði til að taka handtekna mótmælendur af lífi. Embættismenn og saksóknarar í Íran hafa gefið til kynna að það sé rangt og ýtti Khamenei undir það í ræðu sinni. Trump hefur ekki útilokað hernaðaraðgerðir gegn klerkastjórninni og hefur sent flugmóðurskip, herþotur og loftvarnarkerfi á svæðið. Ráðamenn í Mið-Austurlöndum og víðar telja, samkvæmt Wall Street Journal, að árásir á Íran séu enn mögulegar. Mótmæltu vegna efnahagsmála Umfangsmikil mótmæli hafa verið nokkuð tíð í Íran á undanförnum árum en þau hafa iðulega snúist um að mótmælendur vilji aukið frelsi frá klerkastjórninni. Að endingu hafa mótmælin oft verið kveðin niður með miklu harðræði. Rætur mótmælanna má að þessu sinni að langmestu rekja til mjög slæms efnahagslegs ástands í Íran. Gjaldmiðill Íran hefur hríðfallið í virði undanfarið ár, verðlag hefur hækkað mjög þar sem verðbólga mælist fjörutíu prósent og aðstæður almennings hafa versnað til muna. Mótmælin virðast vera búin eftir að klerkastjórnin mætti mótmælendum af mikilli hörku. Myndefni hefur sýnt öryggissveitir skjóta mótmælendur á götum Íran. Aðstæður hafa þó ekki skánað í Íran og eru frekari mótmæli í framtíðinni möguleg.
Íran Bandaríkin Mótmælaalda í Íran Donald Trump Tengdar fréttir Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Klerkastjórnin í Íran vinnur í því að rjúfa tengingu borgara sinna við veraldarvefinn endanlega, að sögn samtaka sem fylgjast með vefritskoðun íranskra stjórnvalda. Verið sé að koma upp sérírönsku interneti án tengingar við umheiminn. 17. janúar 2026 17:24 Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa verið fullvissaður um að stjórnvöld í Íran séu ekki lengur að drepa mótmælendur í landinu en að hann muni fylgjast með stöðu mála og sjá til með mögulegar hernaðaraðgerðir. 15. janúar 2026 06:37 Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Ráðamenn í Mið-Austurlöndum eru sagðir hafa reynt að sannfæra Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að gera ekki árásir gegn klerkastjórninni í Íran. Þeir vilja ekki auka á óöldina á svæðinu og segjast óttast afleiðingarnar sem fall klerkastjórnarinnar gæti haft. 14. janúar 2026 10:47 Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið því að grípa til afdráttarlausra aðgerða ef stjórnvöld í Íran hefja aftökur á handteknum mótmælendum. Trump hafði áður hótað ráðamönnum í Íran vegna ofbeldis gegn mótmælendum en áætlað er að yfir 2.500 manns hafi látist fram að þessu. 14. janúar 2026 06:50 Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira
Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Klerkastjórnin í Íran vinnur í því að rjúfa tengingu borgara sinna við veraldarvefinn endanlega, að sögn samtaka sem fylgjast með vefritskoðun íranskra stjórnvalda. Verið sé að koma upp sérírönsku interneti án tengingar við umheiminn. 17. janúar 2026 17:24
Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa verið fullvissaður um að stjórnvöld í Íran séu ekki lengur að drepa mótmælendur í landinu en að hann muni fylgjast með stöðu mála og sjá til með mögulegar hernaðaraðgerðir. 15. janúar 2026 06:37
Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Ráðamenn í Mið-Austurlöndum eru sagðir hafa reynt að sannfæra Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að gera ekki árásir gegn klerkastjórninni í Íran. Þeir vilja ekki auka á óöldina á svæðinu og segjast óttast afleiðingarnar sem fall klerkastjórnarinnar gæti haft. 14. janúar 2026 10:47
Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið því að grípa til afdráttarlausra aðgerða ef stjórnvöld í Íran hefja aftökur á handteknum mótmælendum. Trump hafði áður hótað ráðamönnum í Íran vegna ofbeldis gegn mótmælendum en áætlað er að yfir 2.500 manns hafi látist fram að þessu. 14. janúar 2026 06:50