Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Samúel Karl Ólason skrifar 17. janúar 2026 08:15 Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra flugmanna. Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna, eða FÍA, segja það alfarið á ábyrgð stjórnenda Icelandair að hætta eigi að fljúga til Istanbúl í Tyrklandi. Stjórnendur hafi gert mistök sem nú sé verið að varpa yfir á flugmenn. Ekkert í núverandi kjarasamningi komi í veg fyrir áframhaldandi flug til Istanbúl.
Icelandair sendi í gær út tilkynningu um ákvörðunina og þar sagði að hún hefði verið tekin vegna þess að stéttarfélagið hefði dregið undanþágu, sem uppbygging flugleiðarinnar hafi krafist, til baka frá og með 1. febrúar. „Því miður mun afturköllun undanþágunnar leiða til kostnaðarhækkana og óvissu sem gera það að verkum að þessi flugleið og frekari fjárfesting í uppbyggingu hennar er að óbreyttu ekki lengur raunhæf fyrir félagið,“ var haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair í tilkynningunni. Í yfirlýsingu frá stjórn FÍA, sem Jón Þór Þorvaldsson formaður skrifar undir, segir að ákvörðunin snúist um samstarfssamning sem Icelandair hafi gert við Turkish Airlines í júní 2023. Í kjölfarið hafi komið í ljós að í undirbúningi fyrir flugferðir til Istanbúl hafi verið gerð alvarleg mistök og gleymst hafi að gera ráð fyrir lögbundnum hvíldartíma áhafna í Istanbúl. Þegar þau mistök hafi uppgötvast, í maí 2025, hafi forsvarsmenn Icelandair leitað til FÍA og farið fram á undanþágu frá kjarasamningi og hún hafi verið veitt. Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að það sé hagur bæði Icelandair og flugmanna að stuðla að vexti og uppgangi félagsins og að undanþágur sem þessar hafi ítrekað verið veittar án ágreinings í marga áratugi. Hins vegar segir stjórnin að stjórnendur Icelandair hefðu alltaf getað skipulagt ferðirnar til Istanbúl innan ramma kjarasamninga og reglugerðar, án þess að þurfa undanþágur. Allar undanþágur ógildar Stjórnin segir að síðastliðið haust hafi stjórnendur Icelandair ákveðið að hafna einhliða einu ákvæði kjarasamnings sem skrifað var undir árið 2020. FÍA hafi skotið því máli til Félagsdóms sem hafi úrskurðað þann 10. desember að þáverandi formann samningsnefndar Icelandair hafi skort umboð og því væri ákvæðið sem um ræðir ekki hluti af kjarasamningi. Sjá einnig: Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hæstiréttur hefur síðan þá staðfest niðurstöðu Félagsdóms en FÍA segir að þessi málatilbúnaður hafi hvorki verið að ósk né frumkvæði félagsins. Málið hafi þó þær afleiðingar að allar undanþágur séu lagalega ógildar og þar á meðal sú undanþága sem FÍA hafi í góðri trú veitt vegna flugferða til Istanbúl. Stjórn FÍA segir ákvörðunina um að fella niður flug til Istanbúl alfarið á ábyrgð stjórnenda félagsins og byggja á mistökum þeirra. Nú séu þeir að gera tilraun til að varpa ábyrgðinni yfir á flugmenn. Þá sé ekkert í núverandi kjarasamningi sem komi í veg fyrir áframhaldandi flugferðir til Istanbúl. „Stjórn og félagsmenn FÍA harma ákvörðun Icelandair og hafna alfarið ásökunum um hlut FÍA í þeirri ákvörðun.“
Icelandair Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Ferðalög Hár og förðun Tyrkland Kjaramál Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira