Áhugamaður vann meistarann og milljón dollara Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. janúar 2026 23:03 Fáir geta sigrað Jannik Sinner en Jordan Smith þurfti bara að stela einu stigi. Graham Denholm/Getty Images Jordan Smith er milljón áströlskum dollurum ríkari eftir sigur á sýningarmóti sem var haldið í undirbúningi fyrir opna ástralska meistaramótið.
Á þessu skemmtilega móti er aðeins spilað upp í eitt stig og því má alls ekkert fara úrskeiðis. Þátttakendur eru bæði áhugamenn og atvinnumenn í efstu sætum heimslistans. Á leið Smith í úrslitaleikinn lagði hann Jannik Sinner, ríkjandi meistara opna ástralska risamótsins og næstbesta tenniskappa heims samkvæmt nýjasta heimslista, og Amanda Anisimova, fjórðu bestu tenniskonu heims. A local amateur WINS the 1 Point Slam! Jordan Smith defeats world No.117 Joanna Garland and pockets a MILLION dollars, driven by @kiaaustralia pic.twitter.com/7AAX8YFl8A— #AusOpen (@AustralianOpen) January 14, 2026 Smith mætti svo Joanna Garland (117. sæti á heimslista kvenna) í úrslitaleiknum en hún vann þriðja besta tenniskappa heims, Alexander Zverev, og heimamanninn Nick Kyrgios sem hefur komist í úrslitaleik opna ástralska meistaramótsins. Mótið einkenndist almennt af gleði og meira að segja reiðiskast Kyrgios og spaðaskemmdirnar sem hann er frægur fyrir komu ekki í veg fyrir það. Since 2024, only two men have won an event that both Carlos Alcaraz and Jannik Sinner had entered:Andrey Rublev, Madrid 2024Jordan Smith, 1 Point Slam 2026 pic.twitter.com/BzV3pUDxSJ— Bastien Fachan (@BastienFachan) January 14, 2026 Mótið var haldið í fyrsta sinn í fyrra en er fljótt að verða mjög vinsæll hluti af opna ástralska meistaramótinu, sem hefst eftir fjóra daga. Í fyrra var mótið með mun minna sniði og aðeins einn keppandi, Andrey Rublev, var í efstu tíu sætum heimslistanna. Þá var verðlaunaféð líka ekki nema sextíu þúsund ástralskir dollarar en í ár er sigurvegarinn Jordan Smith milljón dollurum ríkari. Stjörnurnar á mótinu virtust ekki svo svekktar með að sjá áhugamann vinna og samglöddust mikið eins og sjá má hér fyrir neðan. La reazione di Alcaraz e dello spogliatoio alla vittoria di Jordan Smith del 1 Point Slam 😂pic.twitter.com/ia9Dky7k4W— Quindici Zero 🎾 (@quindicizero) January 14, 2026
Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Norris náði ráspólnum aftur Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjá meira