Hvers vegna læra börnin þín ekki neitt? Svarið gæti verið í speglinum Jónas Sen skrifar 14. janúar 2026 14:02 Það er allt að fara á hliðina í skólamálaumræðunni. Inga Sæland er sögð tala „mannamál“ — og fólk annaðhvort klappar eða froðufellir yfir „popúlisma“. En á meðan fullorðna fólkið rökræðir orð, er annað að gerast í kyrrþey: börn eru að detta aftan úr lærdómi, og enginn vill bera ábyrgð. Og stundum er svarið óþægilega einfalt: það er í speglinum. Sem píanókennari sit ég dálítið utan við þennan pólitíska hávaða, en ég hef samt einstakt útsýni yfir vígvöllinn. Píanókennsla er nefnilega einn tærasti mælikvarðinn á ástandið í uppeldi og menntun í dag. Af hverju? Vegna þess að píanóið lýgur ekki. Píanóið lýgur ekki Ráðherrann hefur talað tæpitungulaust um að skólakerfið standi höllum fæti og grunnskólinn sé hættur að virka sem jöfnunartæki. Í grunnskóla getur barn „flotið með“ í nokkur ár í ákveðinni kerfislægri meðvirkni. Þar er hægt að skýla sér bak við hugtök eins og „einstaklingsmiðað nám“ og „sveigjanleika“. Á vondum degi þýðir það að enginn þorir að segja upphátt að barnið kunni hvorki að lesa né draga til stafs, af ótta við að styggja einhvern. En píanóið leyfir þetta ekki. Ég sé það í hverri viku: Barnið mætir, brosir, opnar bókina. Mamman eða pabbinn afsakar: „Það var svo brjálað í vikunni.“ Barnið segir: „Ég hafði engan tíma.“ Svo setur það hendur á hljómborðið og sannleikurinn kemur í ljós. Enginn feluleikur er í boði. Ef þú leggur ekki vinnuna í nóturnar, þá kemur ekki tónlist. Raunveruleikinn er miskunnarlaus. „Sveigjanleiki” sem stundum verður skálkaskjól Það er ekki séríslenskt að menntakerfi glími við orðræðu sem hljómar fallega en getur falið óþægilegan sannleika. „Einstaklingsmiðað nám“ er frábær hugmynd þegar hún felur í sér raunverulegan stuðning og skýr markmið. En hún verður hættuleg þegar hún verður að tyggjói, að einhverju teygjanlegu og formlausu þar til ekkert stendur eftir. Og þegar ekkert er mælt, þá er ekkert leiðrétt. Þá er heldur ekkert sem lagast. Þrír stólpar, og heimilið er einn þeirra Menntun hvílir á þremur stólpum: innleggi kennarans, ástundun nemandans og aðhaldi foreldra. Mér er það ánægja að geta fullyrt að meirihluti foreldra er stórkostlegur. Ég mæti daglega fólki sem keyrir barnið í gegnum hálfgerða stórhríð, minnir á æfingarnar, hlustar á nýja lagið og sýnir einlægan áhuga. Þetta eru hetjurnar í kerfinu. Þær eru liðsmenn sem vita að án framlags heima getur kennarinn lítið gert í einum eða tveimur hálftímum á viku. En svo er hinn hópurinn: háværi minnihlutinn sem ég leyfi mér að kalla snjóruðningsforeldra. Snjóruðningsforeldrið: þegar kennarinn verður vandamálið Snjóruðningsforeldrið telur það hlutverk sitt að ryðja öllum óþægindum frá barninu sínu. Verkefni sem er leiðinlegt? Slátrum því bara. Endurgjöf sem stingur? Þá er hún „óviðeigandi“. Kröfur um ástundun? Þær eru „of miklar“ og kennarinn er ekki nógu skemmtilegur. Ef ég, sem kennari, bendi á að nemandinn hafi ekki snert hljóðfærið í viku, þá ætti það að vera einföld staðreynd. Fagleg endurgjöf. En stundum verður hún að einhvers konar árás og allt í einu er ég orðinn vandamálið. Þarna erum við búin að tapa áttum. Því óþægindi eru ekki ofbeldi. Aðhald er ekki harðstjórn. Og agi er ekki niðurlæging. Þetta eru verkfæri sem barnið þarf til að geta lært, staðið af sér mótlæti og upplifað sigur sem er raunverulegur en ekki bara innantómt hrós. Ef við tökum þetta frá barninu, þá hrifsum við frá því meira en nóturnar. Við þurrkum burt lærdóminn til að mæta kröfum og sigrast á erfiðleikum. Spegillinn: liðmaður eða snjóruðningstæki? Ef Inga Sæland talar mannamál um kerfið, þá þurfum við foreldrar að tala mannamál við okkur sjálf. Við þurfum að spyrja okkur: Erum við liðsmenn sem styðjum barnið í gegn um verkefnin eða erum við snjóruðningstæki sem ýta þeim í burtu? Ég segi þetta ekki til að niðurlægja fólk. Og ég segi þetta alls ekki um alla. Margir hafa ekki sömu tækifæri vegna vinnuálags, fjárhagsvandamála eða annarra áskorana. Kerfið ber ábyrgð á að styðja þau betur. Það er líka hluti af jöfnunartæki samfélagsins. En í sumum tilfellum, þar sem tækifærin eru til staðar, virðist ábyrgðin einfaldlega gleymast. Þá verður auðveldara að verja barnið fyrir verkefninu en að standa með því í gegnum viðfangsefnið. Lausnir sem virka í alvöru Til að bæta þetta þurfum við ekki bara gagnrýni heldur hagnýtar lausnir. Til dæmis gæti kerfið innleitt auðskiljanlegri einkunnagjöf, eins og ráðherrann hefur nefnt, til að gera foreldrum auðveldara að fylgjast með framvindu barnsins og grípa inn fyrr. Sveitarfélög gætu líka boðið upp á ókeypis námskeið fyrir foreldra um hvernig þeir geta stutt við nám heima: einfaldar aðferðir við lestur, rútínur, skipulag æfinga. Ekki til að skamma fólk, heldur til að gera námið mögulegt. Og svo framvegis. Falska hljómsveitin Eins og áður sagði lít ég á þetta með augum tónlistarkennarans. Píanóið lýgur ekki. Að búa til fallega tónlist krefst aga, vinnu og samstöðu. Ef við þorum ekki að viðurkenna það, ef við forðumst að horfa í spegilinn og sjá okkar eigin þátt, þá endum við öll í falskri hljómsveit þar sem enginn kann að spila en allir heimta lófatak. Höfundur er tónlistarkennari og gagnrýnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Jónas Sen Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar