Notað á Íslandi þrátt fyrir að hafa mistekist annars staðar Smári Jökull Jónsson skrifar 13. janúar 2026 21:56 Inga Sæland er nýtekin við sem mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Mennta- og barnamálaráðherra segir byrjendalæsisstefnunni hafa verið rutt til rúms hér á landi þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að hún hefði mistekist annars staðar. Hún vill innleiða þróunarverkefnið Kveikjum neistann í fleiri skólum.
Menntarannsóknin Kveikjum neistann hófst í Vestmannaeyjum haustið 2021 sem tíu ára þróunar- og rannsóknarverkefni. Áhersla er á lestur og eftir fyrstu tvö árin náðist það aðalmarkmið að yfir 80% nemenda teldust læsir við lok 2. bekkjar. Mennta- og barnamálaráðherra vill innleiða verkefnið úr Eyjum í fleiri skólum og byrja á þeim sem eiga undir högg að sækja. „Allt samfélagið stendur að því, hvort heldur sem það eru foreldrar eða kennarar eða bara samfélagið í heild sinni. Börnunum líður betur, það er mun meiri verkgleði og það er miklu betri lestrarfærni.“ „Kerfið er ekki síður að bregðast vilja þeirra til góðra verka“ Draumur Ingu er að fá alla með sér í lið. „Við erum að leggja alveg gífurlegar byrðar á kennarana okkar og setja verkefni á þau sem eru nánast varla mannleg í umhverfi sem er þeim ofboðslega erfitt. Kerfið er ekki síður að bregðast vilja þeirra til góðra verka en nemendunum sem búa við að vera með mjög slæma útkomu og útreið í öllum PISA-könnunum,“ bætir Inga við. Hún segir aðra skóla hafa verið að kynna sér verkefnið og stjórnvöld vilji aðstoða við innleiðingu. „Ég mun byrja á því að einbeita mér að því að hjálpa þeim skólum sem eru með mestu áskoranirnar. Við munum ekkert til spara við að hjálpa þeim til þess að fá að ljóma betur heldur en raun ber vitni. Við ætlum ekki að setja fyrir okkur peninga eða annað.“ Býst við alverstu niðurstöðu úr PISA-könnun Í viðtali við aðjúnkt á Menntavísindasviði HÍ í gær kom fram að erfitt væri að leggja mat á verkefnið því þar væru ekki notaðir sömu mælikvarðar og annars staðar. Inga segir árangurinn mælanlegan og verkefnið hafa sannað sig síðustu fimm árin. „Ég segi að mælikvarðinn sem er notaður, hvaða mælikvarða sem er og það er eins og þegar við erum að tala um PISA-kannanir, þá náttúrulega eru tölurnar að tala sínu máli. Það er bara skelfileg niðurstaða og nú erum við að fara að fá nýja könnun sennilega með haustinu. sem að verður sennilega sú alversta,“ og nefnir að síðasta PISA-könnun hafi sýnt að 47% drengja væru með lélegan lesskilning eftir tíu ára grunnskólagöngu. Þá skrapi Ísland botninn í Evrópu þó fjárframlög til menntakerfisins séu með þeim hæstu per nemanda. „Að uppskera ekki ríkulegar en raun ber vitni er okkur til minnkunar. Við þurfum að snúa þessari þróun til betri vegar fyrir okkur öll og ég hvet alla sem að málum koma að viðurkenna vandann og taka utan um hann með mér. Ég er öll af vilja gerð og mun leggja allt mitt í það til að reyna að koma til móts við börnin okkar og kennarana í leið.“ Segir Byrjendalæsisaðferðina hafa mistekist annars staðar Þegar Inga tók við embætti fyrir helgi sagði hún byrjendalæsisstefnuna hafa orsakað að næstum 50% drengja útskrifist með lélegan lesskilning og nánast ólæsir. Orðin voru gagnrýnd í hópum kennara á samfélagsmiðlum. Komu viðbrögðin þér á óvart? „Nei, í rauninni ekki. Þarna hafa alltaf verið ákveðnir einstaklingar sem eru tilbúnir að draga fram vísindalegar rannsóknir og alls konar rannsóknir, rannsóknir sem lágu til dæmis ekki fyrir þegar var verið að fara í þetta Byrjendalæsi. Hins vegar var það sýnt í Bretlandi og fleiri stöðum að þetta, einmitt akkúrat þessi aðferð, hafði mistekist.“ „Þá allt í einu komum við fram og ryðjum henni til rúms. Það var ekkert öðruvísi útkoma hjá okkur og okkar nemendum og í okkar skólum heldur en að hefði í rauninni verið annars staðar.“
Skóla- og menntamál Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira