Ómissandi innviðir – undirstaða öryggis og viðnáms samfélagsins Sólrún Kristjánsdóttir skrifar 8. janúar 2026 14:01 Skuggi ófriðar hvílir yfir heiminum og hefur öryggisumhverfi Evrópu tekið grundvallarbreytingum á síðustu árum. Í þessari nýju heimsmynd birtast ógnir ekki eingöngu í formi hernaðarlegra átaka í hefðbundnum skilningi heldur sem sambland netárása, skemmdarverka, njósna, upplýsingaóreiðu og markvissra árása á ómissandi innviði. Orku- og veituinnviðir eru þar meðal fyrstu skotmarka, enda undirstaða stöðugleika samfélagsins og daglegs lífs almennings. Íslenska ríkið hefur brugðist við með ábyrgum hætti með nýrri varnar- og öryggisstefnu og aukinni áherslu á viðnámsþol samfélagsins. Þar er sérstaklega horft til ómissandi innviða – raforku, vatnsveitna, hitaveitna, fráveitu, fjarskipta og stafrænna kerfa – sem mynda samtengt kerfi þar sem veikleiki á einum stað getur haft keðjuverkandi áhrif á allt samfélagið. Árásir og skemmdarverk á orku-og veituinnviði Á undanförnum árum hefur ítrekað verið ráðist að orkuinnviðum í Evrópu, bæði í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu og víðar. Slíkar árásir eru ekki tilviljunarkenndar heldur hluti af markvissum aðgerðum þar sem reynt er að lama samfélög, grafa undan trausti og skapa óöryggi og ótta. Til að líta okkur enn nær má nefna að skemmdarverk og tilraunir til mengunar eða truflunar vatnsveitna hafa aukist á Norðurlöndum á síðustu misserum. Það undirstrikar að lönd þar sem friður ríkir eru ekki undanþegin slíkum ógnum. Þá er ótalin sú ógn og álag sem breytingar á veðurfari, náttúruhamfarir og loftslagsbreytingar hafa á innviði samfélaga. Öryggi innviða snýst því ekki aðeins um varnir gegn manngerðum ógnum heldur einnig um aðlögun að sífellt ófyrirsjáanlegra umhverfi og náttúruöflum. Ómissandi innviðir eru öryggismál Veitur og önnur fyrirtæki sem starfa á sviði innviðauppbyggingar telja nauðsynlegt að forgangsröðun fjárfestinga endurspegli þessa breyttu stöðu. Öryggi raforkukerfa, vatnsbóla, hitaveitna og stafrænna kerfa er ekki lengur eingöngu rekstrarlegt viðfangsefni heldur hluti af öryggismálum landsins. Orka, vatn, fráveita, fjarskipti og stafræn kerfi mynda grunnstoðir samfélagsins. Truflun á einni stoð getur haft víðtæk áhrif á heilbrigðiskerfi, samgöngur, atvinnulíf og daglegt líf fólks. Því þarf að horfa á innviðakerfið í heild, greina veikleika og byggja upp viðnámsþol áður en áföllin verða, svo samfélagið hafi getu til þess að halda grunnþjónustu gangandi þegar á reynir. Mikilvægi samstarfs Innan ramma varnarmála og viðnámsþols flokkast ómissandi innviðir sem eru ýmist í höndum opinberra aðila eða einkaaðila. Ríkisstjórnin hefur boðað aukið samstarf við þessa aðila, enda ljóst að öryggi innviða verður ekki tryggt nema allir sem bera ábyrgð á þeim sitji við sama borð. Orku- og veitufyrirtæki gegna þar lykilhlutverki. Þau búa yfir þekkingu, gögnum og reynslu sem er ómetanleg þegar kemur að áhættugreiningu, forvörnum og viðbragðsáætlunum. Samorka er tilbúin til víðtæks samstarfs við stjórnvöld, sveitarfélög og aðra hagaðila um að styrkja þennan málaflokk enn frekar. Megum ekki sofna á verðinum Veitur og önnur innviðafyrirtæki standa frammi fyrir þeirri áskorun að samræma fjárfestingar, rekstur og sífellt strangari öryggiskröfur í breyttu umhverfi. Við þurfum markvisst að færa fókus frá viðbrögðum yfir í forvarnir, frá skammtímahugsun yfir í langtímasýn. Forgangsröðun fjárfestinga þarf að taka mið af langtímaáhættu og þeirri staðreynd að innviðir eru ein af fyrstu varnarlínum samfélagsins. Við megum ekki sofna á verðinum. Langtímaverkefni fyrir samfélagið allt Markmiðið er ekki aðeins að bregðast við áföllum heldur að byggja upp öruggt, sjálfbært og innviðakerfi sem einkennist af seiglu til framtíðar. Þetta er langtímaverkefni sem krefst skýrrar forystu, stöðugrar fjárfestingar og trausts samstarfs milli hins opinbera og þeirra sem reka og viðhalda innviðum landsins. Ómissandi innviðir verða að vera eitt af mikilvægustu verkefnum nýs árs. Við óskum eftir víðtæku samstarfi um þetta brýna samfélagsmál – því öryggi innviða er öryggi okkar allra. Höfundur er framkvæmdastýra Veitna og stjórnarformaður Samorku. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sólrún Kristjánsdóttir Orkumál Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar