Þúsundir Kólumbíumanna mótmæltu hótunum Trump Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. janúar 2026 07:08 Bandarískir ráðamenn hafa talað opinberlega um frekari aðgerðir í Suður-Ameríku. Getty/Andres Rot Þúsundir mótmæltu í borgum Kólumbíu í gær, í kjölfar hótana Donald Trump Bandaríkjaforseta um mögulegar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Mótmælendur voru afar harðorðir í garð forsetans. „Trump er djöfullinn, hann er hræðilegasta manneskja í heimi,“ hefur Guardian eftir einum þeirra.
Annar sagði fjarri lagi að Trump væri „forseti friðarins“, eins og hann hefur sjálfur kallað sig. „Hann er forseti átaka, hann er brjálæðingur,“ sagði hinn 67 ára José Silva. „Bandaríska þingið þarf að gera eitthvað til að koma honum frá völdum. Hann er þrjótur.“ Gustavo Petro, forseti Kólumbíu, hafði hvatt landsmenn til mótmæla eftir að Trump og aðrir ráðamenn vestanhafs hótuðu aðgerðum gegn Kólumbíu, Kúbu og fleiri ríkjum á svæðinu í kjölfar leifturárásarinnar í Venesúela. „Það sem átti sér stað í Venesúela var, að mínu mati, ólöglegt,“ sagði Petro þegar hann ávarpaði þúsundir sem söfnuðust saman á Bolívar-torgi í Bogotá. Petro og Trump ræddu saman í síma í gær og eins og svo oft áður þá var annað hljóð í Bandaríkjaforseta eftir símtalið en áður en það átti sér stað. „Það var mikill heiður að tala við forseta Kólumbíu,“ sagði Trump og bætti við að hann hlakkaði til að eiga fund með honum á næstunni. Á sunnudag hafði Trump hins vegar kallað Petro „sjúkann mann sem fílaði að framleiða kókaín og selja það til Bandaríkjanna“. Petro hefur sagst viljugur til að funda með Trump en hefur á sama tíma varað við því að menn láti glepjast. „Orðum þurfa að fylgja görðir,“ sagði hann í gær.
Bandaríkin Venesúela Kólumbía Donald Trump Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira