Svissneski skemmtistaðurinn ekki skoðaður í fimm ár Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. janúar 2026 11:19 Nicolas Feraud bæjarstjóri auk bæjarstjórnar Crans-Montana sat fyrir svörum vegna hins hörmulega eldsvoða. EPA/CYRIL ZINGARO Svissneski skemmtistaðurinn sem varð alelda á nýársnótt með þeim afleiðingum að fjörutíu manns létust og fjöldi særðist alvarlega hafði ekki verið skoðaður af eftirlitsmönnum í fimm ár. Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi sem haldinn var vegna málsins en þar var tilkynnt að skemmtiblys verði bönnuð með öllu á næturklúbbum í Sviss.
Eins og fram hefur komið kviknaði eldurinn í hljóðeinangrandi plötum í lofti í kjallara skemmtistaðarins Le Constellation á Crans-Montana-skíðasvæðinu á gamlársnótt vegna skemmtiblysa sem borin voru fram með flöskum, líkt og margir tengja við svokölluð flöskuborð. Þá varð svokölluð yfirtendrun þegar starfsmenn reyndu að slökkva í eldinum með því að berja hann með viskastykkjum. 83 manns eru á sjúkrahúsi vegna brunasára og eru hinir slösuðu af tólf þjóðernum en alls slösuðust 116 manns. Vildu gera hreint fyrir sínum dyrum Á blaðamannafundinum sat Nicolas Feraud bæjarstjóri Crans-Montana og bæjarfulltrúar fyrir svörum vegna málsins. Lögregla rannsakar nú tildrög eldsins en Feraud sagði bæjaryfirvöld hafa viljað gera hreint fyrir sínum dyrum vegna málsins. Á blaðamannafundinum kom meðal annars fram að byggingin sem skemmtistaðurinn var í var byggð árið 1977. Eigandi húsnæðisins hefði svo árið 2015 fengið að gera á því breytingar að utan og fengið til þess leyfi. Innandyra hafi húsið ekki verið skoðað, eða hvaða breytingar hafi verið gerðar á því. Hljóðeinangrandi plötur hafi einungis verið skoðaðar með tilliti til hljóðvistar þegar eigendur Le Constellation hafi sótt um að lengja opnunartímann. Starfsmenn staðarins á leið með flöskur af áfengi til gesta. Hér sést þegar eldurinn var nýkviknaður. Fram kom á fundinum að bæjaryfirvöldum beri að hafa eftirlit með skemmtistöðum og skoða eldvarnir þar einu sinni á ári. Tekið var fram á fundinum að það eftirlit hafi hins vegar ekki náð yfir hljóðeinangrandi efni í lofti. Þrátt fyrir þessar reglur hafi Le Constellation ekki verið skoðaður í fimm ár. Dómara að meta ábyrgð „Við sjáum eftir því, við skuldum fjölskyldunum það og við viðurkennum ábyrgð okkar,“ sagði bæjarstjórinn á blaðamannafundinum. Hann segir fimm manns starfa við eftirlit með eldvörnum á veitingastöðum og hótelum í bænum, þær byggingar séu yfir tíu þúsund. Bæjarstjórn hafi viljað hafa allt uppi á borðum í málinu og verður ráðist í heildarendurskoðun vegna málsins og hvers vegna skemmtistaðurinn var ekki skoðaður í fimm ár. Þá sagði Feraud að hann myndi ekki segja af sér embætti vegna málsins. Kjörnir fulltrúar hafi verið kosnir af almenningi og þurfi að axla ábyrgð með því að halda áfram að vinna sína vinnu. Það væri dómara að ákveða hvort rannsaka skuli hvort bæjaryfirvöld séu mögulega sakhæf. Benti hann á að rekstraraðilum beri að þekkja reglugerðir, líkt og um fjölda leyfilegra gesta. Hann segir að bæjarstjórn hefði brugðist þá við þegar þeim hefði verið ljóst um stöðu eldvarna. „Þessi vika hefur verið mjög erfið fyrir mig persónulega,“ sagði bæjarstjórinn. „Ég mun að eilífu minnast þeirrar nætur og sorgar allra þessara fjölskyldna.“
Sviss Eldsvoði á skemmtistað í Sviss á nýársnótt Tengdar fréttir Slapp út úr eldhafinu en fór aftur inn til að bjarga kærustu sinni Tahirys Dos Santos, nítján ára leikmaður franska fótboltaliðsins Metz, sem brenndist illa í brunanum á barnum í Sviss sýndi mikla hetjudáð þetta kvöld og fórnaði sér til að bjarga öðrum. 5. janúar 2026 06:31 Sprenging eftir að gestir opnuðu út Fjörutíu manns létu lífið í eldsvoða á skemmtistað í Sviss á nýársnótt. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá gosblysi. Talið er að svokölluð yfirtendrun skýri hversu hratt eldurinn breiddi úr sér. 2. janúar 2026 20:02 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Slapp út úr eldhafinu en fór aftur inn til að bjarga kærustu sinni Tahirys Dos Santos, nítján ára leikmaður franska fótboltaliðsins Metz, sem brenndist illa í brunanum á barnum í Sviss sýndi mikla hetjudáð þetta kvöld og fórnaði sér til að bjarga öðrum. 5. janúar 2026 06:31
Sprenging eftir að gestir opnuðu út Fjörutíu manns létu lífið í eldsvoða á skemmtistað í Sviss á nýársnótt. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá gosblysi. Talið er að svokölluð yfirtendrun skýri hversu hratt eldurinn breiddi úr sér. 2. janúar 2026 20:02