Tómas Bent og félagar með sex stiga forskot Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. janúar 2026 17:06 Tómas Bent er á toppnum. vísir/getty Tómas Bent Magnússon var í byrjunarliði Hearts í 1-0 sigri gegn Livingston og liðið er nú með sex stiga forskot á toppi skosku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir sigur Rangers gegn Celtic fyrr í dag.
Þessi fjölhæfi leikmaður var á hægri kantinum hjá Hearts, spilaði 86 mínútur og tók þrjú skot en hitti ekki rammann. Hann klúðraði einu dauðafæri eftir tíu mínútna leik en það kom ekki að sök því Hearts tók forystuna aðeins átta mínútum síðar. Miðvörðurinn Craig Halkett skoraði markið með skalla eftir fyrirgjöf frá bakverðinum Jordi Altena. Heimamenn Hearts voru mun betri aðilinn og áttu heil fimmtán skot að marki gestanna en komu boltanum bara einu sinni í netið. Botnliðið Livingston hefur ekki unnið síðustu átján leiki í röð en tókst að ógna markinu í þrígang og þá þurfti markmaður Hearts, Alexander Schwolow, að hafa sig allan við í eitt skipti. Útisigur í stórveldaslagnum Rangers vann 3-1 gegn Celtic í nágrannaslag höfuðborgarinnar Glasgow í hádeginu. Yang Hyun-Jun kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik en gestirnir skoruðu síðan þrjú mörk í seinni hálfleik. Youssef Chermiti skoraði tvennu og Mikey Moore setti þriðja markið á 71. mínútu til að gulltryggja sigurinn. Rangers jöfnuðu Celtic að stigum með sigrinum en liðin sitja í 2. og 3. sæti með 38 stig. Hearts sex stigum ofar með 44 stig. Kjartan Már Kjartansson var ónotaður varamaður hjá Aberdeen í 1-0 tapi gegn Falkirk. Hann hefur komið við sögu í 3 af 20 leikjum á tímabilinu en liðið situr í 8. sæti í 12 liða deildinni.
Skoski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira