Fjölskyldur lýsa martraðarkenndri bið Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 3. janúar 2026 11:48 Ekkert hefur spurst til Arthur Brodard, Charlotte Niddam og Achille Barosi, fimmtán og sextán ára, frá því á nýársnótt. Óttast er að þau hafi farist í eldsvoðanum á Crans-Montana skíðasvæðinu á gamlárskvöld. Fjölskyldur ungmenna sem grunað er að hafi látið lífið í eldsvoða í skíðabæ í Sviss á gamlárskvöld bíða enn fregna frá yfirvöldum um nöfn hinna fjörutíu sem létust. Stjórnvöld í Sviss segja daga ef ekki vikur þar til upplýsingar um öll fórnarlömb liggja fyrir.
Í umfjöllun BBC segir að borin hafi verið kennsl á 113 af þeim 119 sem lagðir voru inn á sjúkrahús eftir eldsvoðann. Enn sé unnið að því að bera kennsl á þá sex sem eftir eru. Talið er að eldurinn hafi kviknað í lofti staðarins út frá gosblysi sem starfsmenn gengu með til þeirra sem höfðu keypt flöskur af áfengi. Svissnesk stjórnvöld lýstu í gær yfir fimm daga þjóðarsorg vegna atburðarins. Fór að sækja jakkann sinn og kom ekki aftur Breska ríkisútvarpið ræddi við fjölskyldur barna sem vitað er að fóru á umræddan skemmtistað á gamlárskvöld en ekkert hefur heyrst frá síðan þá. „Ég verð að finna son minn. Það eru liðnar þrjátíu klukkustundir síðan hann hvarf,“ segir Laetitia Brodard, móðir hins sextán ára gamla Arthurs Brodard. Hún segir föður piltsins hafa ferðast milli sjúkrahúsa í Bern og Lausanne í von um að finna son sinn. Í samtali við svissneska miðilinn Le Temps segir Laetitia síðustu daga líkjast martröð. Miðillinn fjallar sömuleiðis um hina fimmtán ára gömlu Charlotte Niddam, breskan ríkisborgara sem starfar við barnapössun á skíðasvæðinu meðan hún er í fríi frá skóla. Óttast er að hún hafi farist í eldsvoðanum. Í tilkynningu frá menntaskólanum sem hún sækir er fólk beðið um að biðja fyrir Charlotte og fjölskyldu hennar. Aðstandendur sextán ára gamla Ítalans Achille Osvaldo Giovanni Barosi bíða sömuleiðis milli vonar og ótta eftir fréttum af piltinum. Hann mætti á skemmtistaðinn á öðrum tímanum á nýársnótt til að sækja jakka og síma sem hann hafði skilið eftir þar. Fjölskylda hans hefur ekki heyrt frá honum síðar. „Við vitum ekki hvort hann sé enn á lífi,“ sagði Francesca frænka hans í samtali við BBC.
Sviss Eldsvoði á skemmtistað í Sviss á nýársnótt Tengdar fréttir Fyrsta fórnarlambið nafngreint Golfsamband Ítalíu hefur staðfest að Emanuele Galeppini, sautján ára kylfingur sem hefur verið búsettur í Dúbaí, hafi farist í eldsvoðanum á skemmtistað í svissneska skíðabænum Crans-Montana á nýársnótt. Galeppini er fyrsta fórnarlambið sem hefur verið nafngreint opinberlega en um fjörutíu manns fórust í brunanum. 2. janúar 2026 08:57 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Fyrsta fórnarlambið nafngreint Golfsamband Ítalíu hefur staðfest að Emanuele Galeppini, sautján ára kylfingur sem hefur verið búsettur í Dúbaí, hafi farist í eldsvoðanum á skemmtistað í svissneska skíðabænum Crans-Montana á nýársnótt. Galeppini er fyrsta fórnarlambið sem hefur verið nafngreint opinberlega en um fjörutíu manns fórust í brunanum. 2. janúar 2026 08:57