Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Bjarki Sigurðsson skrifar 2. janúar 2026 13:07 Frá flugeldasýningu Hjálparsveita skáta í Kópavogi. Vísir/Vilhelm Sala björgunarsveita á flugeldum gekk mjög vel þessi áramótin. Fólk hafi almennt farið varlega við að skjóta þeim upp, en nokkrir leituðu á bráðamóttöku með áverka á augum. Loftgæði eru aftur komin í lag eftir mengaða nýársnótt.
Sprengjuglaðir Íslendingar fengu útrás á gamlárskvöld líkt og ár hvert. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir sölu björgunarsveita á flugeldum hafa gengið vel þetta árið, þó hann geti ekki fullyrt hvort salan hafi gengið betur en í fyrra. „Heilt yfir sýnist mér þetta hafa gengið vel. Þetta er okkar mikilvægasta fjáröflun og markaðshlutdeildin er góð, við kvörtum ekki yfir samkeppninni. En við erum á fínum stað fyrir nýtt ár og tilbúin í þau verkefni sem það mun færa okkur,“ segir Jón Þór. Jón Þór Víglundsson er upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.Vísir/Einar Allir þurfi að nota gleraugu Flestir hafi verið með gleraugu en því miður séu alltaf einhverjir sem klikka á þessari mikilvægu öryggisráðstöfun. „Það sem ég sá til var fólk að fara skynsamlega að þessu. Ég sá gleraugu á andlitum ansi margra. En greinilega ekki nógu margra því það voru átta sem leituðu á bráðamóttöku með áverka á augum. Það er átta of mikið,“ segir Jón Þór. Fólk fari úr bænum Loftgæði fóru yfir heilsuverndarmörk á nýársnótt og vegna hægs veðurs hélt mengunin sér yfir stærstu þéttbýlisstöðum fram yfir kvöldmatarleyti á nýársdag, að sögn Þorsteins Jóhannssonar, sérfræðings í loftgæðum hjá Umhverfis- og orkustofnun. „Það er misjafnt hvað fólk finnur fyrir þessu. Ungt, hraust fólk finnur í sjálfu sér ekki fyrir þessu en þetta er mjög fínt svifryk og mjög lítill hópur sem er mjög viðkvæmur. Fólk með astma eða lungnasjúkdóma sem finnur alveg rækilega fyrir þessu. Maður heyrir jafnvel að það fólk haldi sér innandyra og fari ekkert út. Eða fari bara úr bænum,“ segir Þorsteinn. Þorsteinn Jóhannsson er sérfræðingur í loftgæðum.Vísir/Sigurjón Lítill vilji Til að sporna gegn mengun hafa Hollendingar ákveðið að banna flugelda. Þorsteinn segir það einu lausnina á loftgæðavandanum um áramótin, en lítill vilji sé fyrir að stíga það stóra skref. „Ég geri ráð fyrir því að þetta verði áfram svona næstu áramót,“ segir Þorsteinn.
Flugeldar Björgunarsveitir Loftgæði Áramót Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira