Fimm daga þjóðarsorg lýst yfir í Sviss Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. janúar 2026 06:44 Fjöldi fólks kom saman í Crans-Montana í gær. Íbúar og landsmenn allir eru sagðir í áfalli vegna harmleiksins. Getty/Harold Cunningham Stjórnvöld í Sviss hafa lýst yfir fimm daga þjóðarsorg vegna eldsvoðans á barnum Le Constellation í skíðabænum Crans-Montana, þar sem 40 létu lífið og að minnsta kosti 115 særðust. Unnið er að því að bera kennsl á látnu.
Forsetinn Guy Parmelin segir um að ræða einn versta atburðinn í sögu þjóðarinnar. Eldurinn braust út um klukkan hálf tvö á nýársnótt. Eldsupptök eru enn á reiki en vitni hafa greint frá því að hann hafi byrjað eftir að blysum var komið fyrir í kampavínsflöskum. Eldurinn hafi byrjað í loftinu og breitt hratt úr sér í rýminu, sem var í kjallara hússins. Þá hafa vitni lýst því hvernig fólk freistaði þess í örvæntingu að komast út um þröngan stiga. Ekki er vitað hversu margir voru á staðnum þegar harmleikurinn átti sér stað og því ekki á hreinu hversu margra er saknað. Lögregla segir það munu taka daga og jafnvel vikur að bera kennsl á látnu. Yfirvöld segja rannsókn á eldsvoðanum meðal annars munu ná til þess hvort öryggiskröfur voru uppfylltar og hvort neyðarútgangar voru í samræmi við reglur. Ástand margra sem særðust er sagt alvarlegt. Þeir hafi hlotið veruleg brunasár og lungnaskemmdir. Fólkið var flutt á sjúkrahús víða um Sviss og nokkrir til nágrannaríkjanna. Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur staðfest að einhverjir séu undir eftirliti á þarlendum sjúkrahúsum. Le Constellation opnaði árið 2015 og rúmaði um það bil 300 manns. Staðurinn var vinsæll meðal unga fólksins sem heimsótti skíðabæinn og þekktur fyrir að horfa í gegnum fingur sér þegar kom að því að hleypa einstaklingum undir aldri inn.
Sviss Eldsvoði á skemmtistað í Sviss á nýársnótt Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Fleiri fréttir Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Sjá meira