„Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Agnar Már Másson skrifar 31. desember 2025 15:19 Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi ríkisstjórnarflokkana. Vísi/Anton Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir Samfylkinguna og Viðreisn hafa slegið Íslandsmet í svikum á kosningaloforðum.
Guðrún sagði árið liðið sérstakt á margan hátt, viðburðaríkt. Hún nefndi að Samfylkingin og Viðreisn hafi í fyrra keyrt kosningabaráttu á miklum loforðaflaumi. Guðrún segir að niðurstöður kosninganna hafi verið vonbrigði fyrir sinn flokk enda sú versta sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur þurft að þola. „Þeir flokkar lofuðu ítrekað og sögðu: það væri tvennt sem við ætlum að leggja áherslu á, það er það að við munum ekki hækka skatta á vinnandi fólk eða venjulegt fólk, og að við munum berja niður verðbólgu og vexti með sleggju,“ sagði Guðrún með vísan til formanns Samfylkingarinnar, Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, sem birti auglýsingu í kosningabaráttunni þar sem hún beitti sleggju til að „negla niður vexti og verðólgu“. Spurð hvort Kristrún sæi eftir þessari auglýsingu svaraði forsætisráðherrann hvorki játandi né neitandi. Kristrún viðurkenndi að verðbólgan hafi ekki verið lægri í desember en viðurkenndi að það væru vonbrigði að hún hafi hækkað í desember. Guðrún hélt svo áfram: „Þegar þessi ríkisstjórn tók við var verðbólga 4,6 prósent og hún er 4,5 prósent. Þetta er árangurinn af öllum þessum hamarshöggum Kristrúnar Frostadóttur: Enginn, enginn.“ Kvaðst hún ekki ætla að fullyrða hvort þetta varðaði heimsmet í svikum á kosningaloforðum. „En þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum,“ bætti hún við. Sjá má Kryddsíld 2025 í heild sinni í spilaranum að neðan.
Kryddsíld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira