Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka Samúel Karl Ólason skrifar 30. desember 2025 16:44 Skjáskot úr myndbandi sem sýna á aðgerðir lögreglunnar í Tyrklandi. Yfirvöld í Tyrklandi hafa handtekið 357 menn sem grunaðir eru um að tengjast Íslamska ríkinu. Var það gert í kjölfar skotbardaga milli lögregluþjóna og ISIS-liða í gærmorgun þar sem þrír lögregluþjónar, öryggisvörður og sex ISIS-liðar féllu.
Innanríkisráðherra Tyrklands sagði í dag að aðgerðirnar hefðu náð til 21 héraðs í Tyrklandi. Íslamska ríkið hefur alltaf verið talið tiltölulega umsvifamikið í Tyrklandi. Vígamenn samtakanna hafa gert árásir þar í landi og skutu meðal annars 39 til bana á skemmtistað í Istanbúl á nýársdag 2017. Þá er Tyrkland af sérfræðingum talið notað sem nokkurs konar miðstjórn fyrir anga samtakanna víðsvegar um heiminn. Ali Yerlikaya, áðurnefndur innanríkisráðherra, deildi myndbandi af aðgerðum lögreglunnar. “21 ilde bu sabah eş zamanlı olarak Polisimiz tarafından düzenlenen operasyonlarımızda; 357 DEAŞ şüphelisini yakaladık.” Cumhuriyet Başsavcılıklarımız ile EGM TEM Daire Başkanlığımız ve İstihbarat Başkanlığımız koordinesinde İl Emniyet Müdürlüklerince; Adana, Ağrı, Ankara,… pic.twitter.com/oLLtCTp8tZ— Ali Yerlikaya (@AliYerlikaya) December 30, 2025 Tyrkneski miðillinn TRT World hefur eftir lögreglustjóranum í Istanbúl að þar hafi 110 menn verið handteknir á 114 mismunandi stöðum þar sem gerð var húsleit. Af þeim er 41 sagður tengjast hryðjuverkamönnunum sem lögregluþjónar börðust við Yalova-héraði í gær. Sjá einnig: Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Mennirnir í Istanbúl eru sagðir hafa verið að skipuleggja hryðjuverkaárásir um áramótin. Þá hefur TRT eftir saksóknurum í Ankara að sautján meintir ISIS-liðar hafi verið handteknir þar. Ellefu þeirra hafi verið erlendir og mennirnir séu grunaðir um að hafa átt í samskiptum við aðila á átakasvæðum í heiminum. Einhverjir þeirra sem hafa verið handteknir eru grunaðir um að hafa safnað fé í skjóli meintrar góðgerðarstarfsemi en senda peningana til Íslamska ríkisins í Sýrlandi.
Tyrkland Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira