Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. desember 2025 08:01 OCHA áætlar fjárþörf stofnunarinnar fyrir næsta ár um það bil 23 milljarða dala. Getty/Anadolu/Abuukar Mohamed Bandaríkjastjórn mun leggja fram tvo milljarða Bandaríkjadala í sjóð undir stjórn Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA), í stað þess að fjármagna einstaka undirstofnanir og verkefni í málaflokknum. Frá þessu var greint í gær.
Ákvörðuninni hefur verið fagnað þar sem óvíst var um framlög Bandaríkjanna til mannúðarmála á næsta ári en þetta er engu að síður verulegur niðurskurður frá því í fyrra, þegar Bandaríkin vörðu 3,4 milljarða dala til mannúðarmála í gegnum Sameinuðu þjóðirnar. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið afar gagnrýninn á fjárhagsaðstoð til erlendra ríkja og verkefna og skorið alla mannúðaraðstoð verulega niður, meðal annars með því að lama USAID. Afstaða stjórnvalda endurspeglast í skilaboðunum sem fylgja fjárframlögum næsta árs en þau eru háð því að breytingar verði gerðar á skipulagi málaflokksins innan SÞ til að draga úr yfirbyggingu og komið í veg fyrir tvíverknað og hugmyndafræðileg áhrif. „Einstaka stofnanir Sameinuðu þjóðanna verða að aðlagast, draga saman seglinn eða deyja,“ segir í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna. Fjárframlagi Bandaríkjanna verður varið til aðstoðar í sautján ríkjum, þeirra á meðal El Salvador, Gvatemala og Hondúras en ekki Afganistan og Jemen, sem eru á forgangslista SÞ. Þá verða fjármunirnir ekki nýttir til aðstoðar á Gasa en öll verkefni þar verða fjármögnuð eftir öðrum leiðum. Stjórnvöld vestanhafs segja að ráðstöfun fjársins með þessum hætti, það er að segja í einn sjóð í stað hundruða einstakra styrkveitinga, muni spara allt að tvo milljarða dala. New York Times greindi frá.
Bandaríkin Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira