Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. desember 2025 17:02 Mohamed Salah fékk góða hvíld fyrir Afríkumótið og er að byrja mótið með tveimur sigurmörkum í fyrstu tveimur leikjunum. Getty/Stringer Egyptaland hefur unnið tvo fyrstu leiki sína á Afríkumótinu í fótbolta og þjóðin getur þakkað Liverpool-manninum Mohamed Salah fyrir það.
Annan leikinn í röð skoraði Salah sigurmarkið og þjóðhetjan er heldur betur að standa undir nafni í byrjun mótsins. Egyptar unnu 1-0 sigur á Suður-Afríku í dag þrátt fyrir að leika manni færri allan seinni hálfleikinn. Sigurmark Salah kom úr vítaspyrnu á 45. mínútu en Salah fiskaði vítið sjálfur. Á annarri mínútu í uppbótatíma fyrri hálfleiks fékk liðsfélagi hans, Mohamed Hany, sitt annað gula spjald og þar með rautt. Manchester City-framherjinn Omar Marmoush var tekinn af velli í hálfleik til að þétta raðirnar í seinni hálfleiknum, tíu á móti ellefu. Það tókst að halda út og niðurstaðan því 1-0 sigur og þar með fullt hús í efsta sæti riðilsins. Lokaleikurinn í riðlinum er á móti Angóla sem hefur aðeins eitt stig út úr fyrstu tveimur leikjum sínum. Salah skoraði einnig sigurmarkið í 2-1 sigri á Simbabve í fyrsta leik en það mark hans kom ekki fyrr en í uppbótatíma leiksins. Mo Salah er alls kominn með 65 mörk í 111 landsleikjum fyrir Egyptaland, þar af eru sex þeirra frá þessu ári. Hann vantar aðeins fjögur mörk til að jafna markamet Hossam Hassan (69 mörk frá 1985 til 2006).
Afríkukeppnin í fótbolta Egyptaland Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira