Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. desember 2025 19:03 Jean-Louis Gasset sést hér í starfi sínu sem þjálfari Olympique de Marseille en þessi var tekin í undanúrslitaleik í Evrópudeildinni 2024. Getty/Jean Catuffe/ Hinn þaulreyndi franski fótboltamaður og þjálfari Jean-Louis Gasset er látinn, 72 ára að aldri.
Fjölskylda Gasset tilkynnti andlátið í skilaboðum til franska stórblaðsins L'Équipe. Hann lést á föstudagsmorgun, öðrum degi jóla, að því er dagblaðið greinir frá. L'Équipe lýsir honum sem goðsagnakenndri persónu í frönskum fótbolta. Gasset var þekktur þjálfari um árabil. Auk þess að hafa stýrt sögufrægum félögum eins og Saint-Étienne, Bordeaux, Marseille og Montpellier, var hann um tíma landsliðsþjálfari Fílabeinsstrandarinnar (2022–2024). Kylian Mbappé, leikmaður Real Madrid og franska landsliðsins, var einn af þeim sem vottuðu Jean-Louis Gasset virðingu sína á samfélagsmiðlum. Á leikmannaferli sínum var Gasset miðjumaður hjá fyrrnefndu Montpellier í áratug. „Það er með mikilli sorg sem við segjum fréttir í dag af andláti Jean-Louis Gasset. Hann var stórkostleg persóna í sögu félagsins og fór síðar til annarra stórra félaga sem þjálfari,“ skrifar Montpellier í tilkynningu á föstudag. Frá 2010 til 2012 var Gasset aðstoðarmaður Laurent Blanc hjá franska landsliðinu og hann hafði einnig gegnt aðstoðarhlutverkum hjá PSG og Espanyol. Hann kynntist Blanc á meðan þeir spiluðu báðir með Montpellier og Gasset var aðstoðarmaður hans hjá nokkrum félögum auk landsliðsins. Síðasta starf hans var sem aðalþjálfari hjá Montpellier, þar sem hann lauk störfum í apríl. View this post on Instagram A post shared by L'Équipe (@lequipe)
Franski boltinn Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Fótbolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Íslenski boltinn Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Handbolti Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Fótbolti Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Íslenski boltinn Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Dembélé með aðra tvennu gegn Toulouse Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Ægir Jarl mættur til Fram Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Gattuso hættir með sorg í hjarta Diljá flaug á hausinn en skoraði samt Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins „Svona er lífið, en allt gerist af ástæðu“ Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Draumabyrjun hjá Lindu Líf í atvinnumennskunni Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Fyrrverandi markakóngur HM lagður inn á sjúkrahús „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Mæta meisturum Arsenal eftir sigur í framlengingu Íslenskur sigurvegari á fyrstu leiktíð Evrópubikarsins Niðurlægðu Real og mæta Glódísi Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni Sjá meira