Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Valur Páll Eiríksson skrifar 24. desember 2025 14:51 Tapsoba var hetjan á ótrúlegum lokamínútum. Visionhaus/Getty Images Búrkína Fasó vann hreint ótrúlegan 2-1 sigur á Miðbaugs-Gíneu í fyrsta leik dagsins í Afríkukeppninni í fótbolta í Marokkó.
Leikur liðanna var býsna tíðindalítill framan af en gíneska liðið varð fyrir áfalli þegar Basilo Ndong, leikmanni Tirana í Albaníu, var vísað af velli snemma í síðari hálfleik. Mörkin létu á sér standa allt þar til á 85. mínútu þegar varnarmaðurinn Marvin Anieboh kom tíu leikmönnum Miðbaugs-Gíneu yfir og allt stefndi í sterkan sigur manni færri. Georgi Minoungou jafnaði hins vegar á fimmtu mínútu uppbótartíma eftir stoðsendingu frá Dango Outtara, leikmanni Bournemouth á Englandi, við mikinn fögnuð Búrkína. Búrkínar létu þó ekki þar við sitja þar sem Edmond Tapsoba, varnarmaður Leverkusen í Þýskalandi, skoraði það sem reyndist sigurmarkið á áttundu mínútu uppbótartíma og gríðarleg fagnaðarlæti brutust út. Búrkína Fasó hefur mótið því á sigri en Miðbaugs-Gíneu menn sitja eftir með sárt ennið. Alsír og Súdan mætast í sama riðli klukkan 15:00. 🚨 TAPSOBA SCORES FOR BURKINA FASO VS EQUATORIAL GUINEA IN THE 98TH MINTUE TO SECURE THE 3 POINTS MADNESS 🤯🔥pic.twitter.com/F7c7q0gGli— KinG £ (@xKGx__) December 24, 2025
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harðvígar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Sjá meira