Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. desember 2025 17:02 Dani Alves á HM 2022. Skömmu áður en hann hætti að spila í kjölfar kynferðisbrots. Richard Sellers/Getty Images Dani Alves, einn sigursælasti knattspyrnumaður sögunnar, er að festa kaup á liði í þriðju efstu deild Portúgals þar sem hann mun einnig skrifa undir sem leikmaður og snúa aftur á völlinn eftir nokkurra ára fjarveru.
Marca greinir frá því að Brasilíumaðurinn og fyrrum leikmaður Barcelona, Juventus, PSG og fleiri liða sé, ásamt öðrum fjárfestum, að kaupa Sao Joao da Ver, lið sem situr í 10. sæti þriðju deildarinnar í Portúgal. Alves hætti að spila fótbolta í ársbyrjun 2023, eftir að hafa verið handtekinn fyrir að hafa beitt konu kynferðislegu ofbeldi á gamlárskvöld. Hann sat inni í rúmt ár og var að lokum dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi, en í febrúar á þessu ári var hann látinn laus gegn tryggingu og dómnum var síðan snúið við. Nýlega hefur Alves vakið athygli fyrir störf sín sem prédikari en myndband af guðsþjónustu hans fór víða á samfélagsmiðlum í haust. View this post on Instagram Samkvæmt umfjöllun Marca og ESPN Brazil er Alves staðráðinn í að enda leikmannaferilinn á eigin forsendum og spenntur fyrir því að spila fótbolta á ný. Hann er orðinn 42 ára gamall og myndi aðeins gera stuttan sex mánaða samning áður en skórnir fara aftur upp á hillu.
Portúgalski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira