Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Lovísa Arnardóttir skrifar 22. desember 2025 13:50 Það eru gerðar nokkrar breytingar á staðgreiðslu einstaklinga um áramótin. Vísir/Vilhelm Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka og hjón og sambúðarfólk munu ekki lengur geta samnýtt annað og þriðja skattþrepið. Gerðar eru nokkrar breytingar á staðgreiðslu einstaklinga þessi áramótin.
Persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga hækka samkvæmt lögum í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 4,5 prósentum á tólf mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 5,5 prósent. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að miðað sé við eins prósenta árlega aukningu framleiðni og að það mat sé tekið til endurskoðunar á fimm ára fresti, næst fyrir tekjuárið 2027. Í tilkynningu kemur fram að tekjuskattsprósentan verði óbreytt frá fyrra ári sem og hámarksútsvar sveitarfélaga. Vegið meðalútsvar reiknast út frá útsvarsprósentu sveitarfélaga á árinu 2026 að teknu tilliti til tekjuskattsstofns hvers sveitarfélags og verður óbreytt á milli ára eða 14,94 prósent. Þá er greint frá því að á næsta ári falli út heimild hjóna og sambúðaraðila til að samnýta annað og þriðja þrep, í þeim tilvikum þegar annar aðilinn er með tekjuskattsstofn í þriðja þrepi en hinn ekki. Þá hækka skattleysismörk barna yngri en 16 ára í fyrsta sinn frá árinu 2014, úr 180.000 í 300.000. Tekjur barna umfram 300.000 bera 6 prósenta skatthlutfall (4 prósenta tekjuskatt og 2 prósenta útsvar). Í eftirfarandi töflum má sjá skattprósentur, skattleysismörk, persónuafslátt og þrepamörk í kr. fyrir árin 2024 og 2025. Breytingar á tekjuskatti einstaklinga. Stjórnarráðið Breytingar á tekjuskatti einstaklinga í staðgreiðslu. Stjórnarráðið Engar breytingar á tryggingagjaldi. Stjórnarráðið
Skattar, tollar og gjöld Börn og uppeldi Vinnumarkaður Mest lesið Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Gengi Alvotech tekur kipp Viðskipti innlent Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Sjá meira