Nú hefst aðventan: HM í pílu af stað í kvöld Valur Páll Eiríksson skrifar 11. desember 2025 11:30 Littler varð heimsmeistari í janúar eftir sigur á Michael van Gerwen í úrslitum. Ben STANSALL / AFP Biðinni löngu eftir heimsmeistaramótinu í pílukasti lýkur í kvöld. Heimsmeistarinn Luke Littler mætir til leiks á fyrsta degi.
HM í pílukasti hefur síðustu ár orðið sífellt stærri hluti aðventunnar hjá Íslendingum. Hægt er að fylgjast með mótinu daglega, bæði á daginn og á kvöldin, fram að jólum. Mótið hefst fyrr en undanfarin ár þar sem keppendum hefur verið fjölgað um 32, úr 96 í 128. Luke Littler fagnaði sigri í fyrra eftir 7-3 sigur á Michael van Gerwen í úrslitum. Littler er fæddur árið 2007 og verður 19 ára í janúar næstkomandi. Hann vann sinn fyrsta titil eftir að hafa tapað fyrir nafna sínum Luke Humphries í úrslitum árið áður. Páll Sævar Guðjónsson er meðal þeirra sem mun lýsa pílunni í desember en hann ræddi komandi mót í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann þykir líklegastur til afreka á mótinu en fjölmargir aðrir öflugir keppendur eru skráðir til leiks að venju. Til að mynda áðurnefndir Humphries og van Gerwen, auk Stephen Bunting, Jonny Clayton, Gerwyn Price, Gary Anderson og fleiri til. Fyrsta viðureign kvöldsins er milli Belgans Kim Huybrechts og Þjóðverjans Arno Merk. Í kjölfarið mætir Bully Boy, Michael Smith, Lisu Ashton í Englendingaslag. Littler er þriðji á svið er hann mætir Litáanum Darius Labanauskas og síðasta viðureign kvöldsins er milli Madars Razma og Jamai van den Herik. Keppni hefst klukkan 20:00 í kvöld á Sýn Sport Viaplay en kvöldkeppnin verður eftir það klukkan 19:00. Þá er einnig keppt yfir daginn og verður keppni á dagskrá klukkan 12:30. Pílan verður því á dagskrá klukkan 12:30 og 19:00 alla daga fram að jólum á Sýn Sport Viaplay.
Pílukast Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Leik lokið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Leik lokið: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Leik lokið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Leik lokið: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Dagskráin: Botnbarátta í Bestu og Barcelona-kappakstur í Formúlu 1 Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Sjá meira