Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 10. desember 2025 10:23 Maria Corina Machado er handhafi friðarverðlauna Nóbels í ár. Getty/Jesus Vargas Afhending Nóbelsverðlaunanna 2025 fer fram við hátíðlega athöfn í dag, 10. desember á dánardegi Alfreds Nobels sem verðlaunin eru kennd við. Maria Corina Machado, handhafi friðarverðlauna Nóbels í ár, verður hins vegar ekki viðstödd athöfnina til að veita verðlaununum viðtöku. Machado, sem er stjórnarandstæðingur frá Venesúela, hefur sætt líflátshótunum af hálfu valdhafa í heimalandinu og hafði ekki færi á að ferðast til Osló í tæka tíð.
Þetta segir Kristian Berg Harpviken, formaður Norsku Nóbelsnefndarinnar, í samtali við NRK. „Það er því miður þannig að hún er ekki í Noregi núna. Og hún mun ekki standa á sviðinu í ráðhúsinu í Osló klukkan eitt þegar athöfnin hefst,“ segir Harpviken. Planið var að hún myndi ná að koma sér til borgarinnar í tæka tíð en nú er óvíst hvort hún komi til Ósló yfirhöfuð. Til stóð að þrjár kynslóðir Machado-fjölskyldunnar yrðu saman komnar í norsku höfuðborginni eftir að hafa verið í fleiri ár í útlegð í nokkrum löndum. Nú er hins vegar gert ráð fyrir að Ana Corina Sosa, dóttir Mariu Corinu Machado, muni veita verðlaununum viðtölu fyrir hönd móður sinnar. Machado var útnefnd sem handhafi friðarverðlauna Nóbels í október fyrir sleitulausa baráttu sína fyrir lýðræði í Venesúela og að tryggja friðsamleg umskipti til lýðræðis frá einræði í Venesúela. Sjá einnig: Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Harpviken undirstrikar í samtali við NRK að það sé af praktískum ástæðum sem Machado hafi ekki getað ferðast til Ósló. „Hún sætir einfaldlega líflátshótunum frá valdstjórninni. Þær teygja anga sína út fyrir landamæri Venesúela, frá stjórninni og vinum stjórnarinnar um allan heim,“ segir Harpviken. Machado flúði í felur í fyrra og hefur síðan dvalið á leynilegu heimilisfangi, en hún sætir farbanni í Venesúela þar sem stjórnvöld hafa bannað henni að yfirgefa landið. Fáir vita fyrir víst hvar hún er stödd eða hvernig hún hugði ferðast til Noregs. „Ég veit ekki hvar hún er og það er góð ástæða fyrir því. Þetta er kúgunarstjórn sem er reiðubúin að beita öllum brögðum gegn stjórnarandstöðunni,“ segir Harpviken. Þótt friðarverðlaun Nóbels séu afhent í Osló fer önnur verðlaunaafhending fram í Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar í dag. Þar verða síðdegis veitt Nóbelsverðlaun í bókmenntum, hagfræði, eðlisfræði, efnafræði og lífeðlis- og læknavísindum.
Noregur Venesúela Nóbelsverðlaun Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira