„Hinn íslenski Harry Kane“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. desember 2025 09:32 Sandra María Jessen fagnar þrennu sinni í leikslok á Hamborg í gær. @fckoeln_frauen Íslenska landsliðskonan Sandra María Jessen fór á kostum í þýsku bundesligunni í gærkvöldi og skoraði þrennu í 4-1 sigri Köln á Hamburger SV.
Sandra María hefur skorað átta mörk í deildinni og er markahæst ásamt nokkrum öðrum. Sandra hefur verið einstaklega drjúg í útileikjum liðsins en hún hefur skorað sjö af átta mörkum sínum á útivelli og alls sjö af níu útivallarmörkum liðsins á leiktíðinni. Hún skoraði fyrsta markið með skalla, svo afgreiddi hún boltann af yfirvegun og innsiglaði síðan sigurinn undir blálokin. Sandra átti líka stóran þátt í fjórða marki síns liðs. Sandra varð þarna fyrsta íslenska konan til að skora þrennu í bundesligunni og aðeins þriðji Íslendingurinn til að ná því á eftir Atla Eðvaldssyni og Alfreði Finnbogasyni. Fólkið í Köln er líka ánægt með okkar konu og kölluðu hana „Hinn íslenska Harry Kane“ við myndband af Söndu fagna sigrinum. Þar mátti heyra liðfélaga Söndru kalla hana Harry Kane sem hefur raðað inn mörkum fyrir karlalið Bayern München síðan hann kom til Þýskalands. Það hefur Sandra líka gert enda komin með átta mörk í aðeins tólf deildarleikjum og er síðan með tvö bikarmörk að auki. Hún hefur alls skorað 22 mörk á árinu því hún skoraði tólf deildar- og bikarmörk fyrir Þór/KA áður en hún fór út. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by 1. FC Köln Frauen (@fckoeln_frauen)
Þýski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira