Japanir saka Kínverja um óvarlega framgöngu í háloftunum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. desember 2025 07:09 Flugmóðurskipið Liaoning kom úr slipp í fyrra eftir viðgerðir sem tóku um það bil ár. Getty/VCG Forsætisráðherra Japan segir þarlend stjórnvöld munu grípa til yfirvegaðra en afdráttarlausra viðbragða vegna atviks sem átti sér stað um helgina, þar sem kínverskar herþotur eru sagðar hafa fest radarmið á japanskar herþotur.
Um er að ræða alvarlegan atburð, þar sem þetta gefur til kynna að árás sé mögulega yfirvofandi og knýr skotmarkið til að grípa til varnarviðbragða. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem þetta hefur gerst í samskiptum Kína og Japan, samkvæmt fréttaveitunni Kyodo. Atvikið er sagt hafa átt sér stað suðaustur af Okinawa eyjum, þar sem kínverski herinn er sagður hafa staðið í heræfingum. Samkvæmt japanska varnarmálráðuneytinu tóku um hundrað herþotur á loft af flugmóðurskipinu Liaoning en í kjölfarið hafi J-15 þotur Kína tvívegis fest mið á F-15 þotur Japan. Sendiherra Kína í Japan var kallaður á teppið í gær en Kínverjar hafa hafnað fullyrðingum Japana og saka þá um að hafa elt uppi og „áreitt“ Liaoning-flotann á meðan hann var við æfingar. Aukinnar spennu hefur gætt í samskiptum Japan og Kína á síðustu vikum, eftir að forsætisráðherra Japan, Sanae Takaichi, sagði að Japanir myndu mögulega grípa til aðgerða ef kínverski herinn léti til skarar skríða gegn Taívan. Donald Trump Bandaríkjaforseti sá sig knúinn til að tjá sig um málið og hvatti Takaichi til að forðast frekari stigmögnun gagnvart Kína, en forsætisráðherrann hefur neitað að draga ummæli sín til baka.
Kína Japan Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira