Einfaldlega tilviljun að Ársæll sé fyrstur í röðinni Kolbeinn Tumi Daðason og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 5. desember 2025 12:27 Guðmundur Ingi segir skólastjóra Borgarholtsskóla einfaldlega fyrstan í röðinni eftir ákvörðun sem tekin var 17. september um skipulagsbreytingar á framhaldsskólakerfinu. Vísir/Anton Brink Mennta- og barnamálaráðherra segir tilviljun hafa ráðið því að skólastjóri Borgarholtsskóla hafi verið fyrstur í röð framhaldsskólastjóra að fá þau tíðindi að starf hans yrði auglýst. Hann hafnar því með öllu að ákvörðunin tengist Ingu Sæland eða gagnrýni skólastjórans. Hann þrái þvert á móti gagnrýni og hugmyndir.
Ársæll Guðmundsson skólastjóri Borgarholtsskóla hefur ekki farið í grafgötur með þá skoðun sína að auglýsing starfsins tengist honum sérstaklega. Hefur þar aðallega verið rifjað upp mál Ingu Sæland sem hringdi í skólastjórann og gerði sig breiða vegna týnds skópars en einnig efasemdir Ársæls um skipulagsbreytingar á framhaldsskólakerfinu með nýjum svæðisskrifstofum. Skólastjórnendur hafa gagnrýnt ákvörðunina og hiti færðist í leikinn á Alþingi í gær þangað sem Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra átti ekki heimangengt vegna sjúkrahúsdvalar. Hann skrapp þaðan í dag, sótti þingflokksfund og ræddi við fjölmiðla. „Þetta var gert af faglegum ástæðum vegna þess að við erum að breyta, við erum að setja upp svæðisskrifstofur og sú ákvörðun var tekin að eftir 17. september yrði farin þessi leið,“ segir Guðmundur Ingi. Hann vísar til 17. september þegar skipulagsbreytingarnar voru kynntar. „Það er tilviljun að það hitti svoleiðis á að skólastjóri Borgarholtsskóla er fyrstur inn í þetta,“ segir Guðmundur Ingi. Hann segir ákvörðunina ekki tengjast með neinum hætti máli Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, sem hringdi í skólastjórann í janúar vegna týnds skópars í Borgarholtsskóla. Ársæll hefur sagst telja að Inga hafi beitt sér fyrir ákvörðuninni vegna þess máls. „Alls ekki vegna þess að ég tilkynni henni um það síðasta mánudag að þetta stæði til og var þá löngu búinn að taka þessa ákvörðun.“ Þá skilur hann ekki í þeim kenningum að gagnrýni Ársæls á fyrirhugaðar breytingar séu ástæðan. Ekki frekar en að ákvörðunin hafi nokkuð með persónu Ársæls að gera. „Ég hef beðið um gagnrýni. Ég er fyrsti menntamálaráðherrann til að fara í alla framhaldsskólana, bað um gagnrýni og hugmyndir um hvernig væri hægt að gera svæðisskrifstofurnar.“ Hann hafi því þegar rætt við alla framhaldsskólameistara landsins, heimsótt þá alla í velheppnuðum ferðum um landið og muni ræða við þá eftir helgi á fundi sem verði boðaður. Þær heimsóknir séu líklega besta hugmynd sem hann hafi fengið. Hann skilji ekkert í athugasemdum um að vegið sé að tjáningarfrelsi stjórnenda. „Ég er að gera þetta á faglegum forsendum. Það vissu allir að þessi breyting stæði til. Ég bað um gagnrýni og ég bað líka um uppbyggjandi upplýsingar um hvernig við gætum gert þetta faglega og vel. Það er það sem við erum að vinna úr.“ Hann segist ekkert skilja í að lögmaður Ársæls vilji leiða forsætisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og sex aðstoðarmenn ráðherra fyrir dóm sem vitni í svokölluðu vitnaleiðslumáli. Það er gert til þess að leita sönnunar um atvik í tengslum við ákvörðun menntamálaráðherra um að auglýsa embætti Ársæls laust til umsóknar. „Mér finnst það eiginlega stórfurðulegt því ég tel mig vera að fara að lögum og reglum.“ Hann verði til svara í þinginu eftir helgi í óundirbúnum fyrirspurnum.
Framhaldsskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skóla- og menntamál Flokkur fólksins Reykjavík Mál skólameistara Borgarholtsskóla Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira