Endurheimtu verðmætt hálsmenið úr þörmum þjófsins Kjartan Kjartansson skrifar 5. desember 2025 08:25 Gullhálsmenið verðmæta eftir að það skilaði sér út úr þjófnum sem gleypti það fyrir viku. AP/lögreglan á Nýja-Sjálandi Verðmætt Fabergé-hálsmen skilaði sér í gærkvöldi út sér þjófi sem gleypti það í skartgripaverslun á Nýja-Sjálandi. Það tók meltingarkerfi mannsins sex daga að sýna lögreglu samstarfsvilja.
Lögreglumenn hafa vaktað þjófinn í varðhaldi frá því að hann var handtekinn fyrir að gleypa hálsmenið í Partridge-skartgripaversluninni í Auckland fyrir viku. Þolinmæði lögreglunnar bar loks ávöxt í gærkvöldi þegar hálsmenið gekk af þjófnum með náttúrulegum hætti og án nokkurs læknisfræðilegs inngrips, eins og það var orðað. Þjófurinn, sem er 32 ára gamall karlmaður, hefur ekki tekið afstöðu til sakarefnisins ennþá en hann kemur næst fyrir dómara á mánudag. Hann verður í varðhaldi í millitíðinni, að sögn AP-fréttastofunnar. Hálsmenið sem hann gleypti var inni í Farbergé-eggi sem var framleitt í takmörkuðu upplagi og var innblásið af James Bond-myndinni „Octopussy“ frá 1983. Í henni notast skartgripasmyglarar við falsað Fabergé-egg. Söluverð hálsmensins var 19.000 dollarar, jafnvirði hátt í tveggja og hálfrar milljónar króna. Verðmiðinn var enn á gullkeðju mensins þegar það var heimt úr helju.
Nýja-Sjáland Erlend sakamál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira