Fór yfir fangaklefa á Vesturlandi: Hálf hurð á baðherberginu og klefinn of lítill Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. desember 2025 15:30 Fangaklefarnir eru í Borgarnesi og á Akranesi. Samsett Umboðsmaður Alþingis tók út aðstöðu, aðbúnað og meðferð þeirra sem eru í haldi lögreglunnar á Vesturlandi. Meðal tilmæla var að setja þyrfti upp klukku og hátta málum svo vistaðir geti fengið að nota salernið í næði.
Umboðsmaður Alþingis heimsótti fangageymslur lögreglunnar á Vesturlandi í Borgarnesi og Akranesi 8. og 9. júlí árið 2024 til að taka út vistun einstaklinga í fangageymslum lögreglustöðvanna. Á einu ári voru 43 vistaðir í fangageymslunum, til lengri tíma á Akranesi en oftar í skemmri tíma í Borgarnesi. Í niðurstöðum umboðsmannsins kemur fram að klefinn í Borgarnesi sé of lítill miðað við alþjóðleg viðmið um lengri vistanir og því megi ekki vista einstakling þar lengur en í nokkrar klukkustundir. Bjöllurnar sem eru í klefunum sem þeir sem dvelja þar geta nýtt til að ná sambandi við starfsfólk eru ekki nógu aðgengilegar fólki með hreyfihömlur eða öðrum með skerta hreyfigetu, líkt og ölvaðir einstaklingar. Í fangaklefum á Akranesi er hlíf fyrir hlera að fangaklefanum og er hún talin skerða yfirsýn inn í þá. Lögreglustjóranum var bent á að taka til skoðunar hvort nota þurfi aðrar leiðir við rauneftirlit. Einnig þurfi að setja þar upp klukku til að vistaðir sjái hvað tímanum líði líkt og réttur þeirra er. Bjöllurnar í klefunum séu einnig ekki nægilega vel staðsettar og lítið heyrist í þeim þegar bjöllunum er hringt. Þá þurfi að breyta klefanum svo vistaðir geti stýrt birtu inni í klefanum. Fangaklefarnir á Akranesi eru gluggalausir og því sé enn mikilvægara að hægt sé að stýra birtunni þar inni. Eigi að fá að nota salernið í næði Hreinlætisaðstaða beggja lögreglustöðvanna er talin ekki nægilega örugg. Á Akranesi sé auðvelt að brjóta salernið, vask og spegil auk þess sem lagnir á hreinlætistækjum séu utanáliggjandi. Sturtuhengi sé í sturtunni sem veki upp spurningar um tillit til öryggissjónarmiða. Salerni vistaðra í fangaklefum Borgarness er ekki með hurð sem nær alveg upp í loft. Umboðsmaður telur að tryggja þurfi að vistaðir fái að nota salernið í næði, ef ekki sé talin ástæða til þess að viðkomandi sé alltaf í sjónmáli. Þá sé efri hluti sturtunnar sjáanlegur meðan hurðin er lokuð. Þá sé einnig brjótanlegt salerni, vaskur og spegill, auk utanáliggjandi lagna. Hurðin í Borgarnesi hefur verið skorin niður.Umboðsmaður Alþingis Á hvorugum staðnum má finna tíðavörur endurgjaldslaust. Tryggja þarf að mismunandi tíðavörur séu í boði til að fullnægja ólíkum þörfum og að það sé ekki til ama að losa sig við þær. Fylgist stöðugt með klefunum Sú staða getur komið upp að ekki sé lögreglumaður af sama kyni og sá vistaði á staðnum til að framkvæma öryggisleit. Það fellur á herðar lögreglustjórans að tryggja að slíkt sé í boði. Þá sé ekki skriflegt verklag um hvaða muni skuli fjarlægja úr fórum vistaðra. Á báðum lögreglustöðunum er stöðug myndvöktun með þeim sem eru vistaðir á þeim forsendum að hún geti dregið úr líkum á ómannlegri eða vanvirðandi meðferð og fyrirbyggt sjálfsvíg, sjálfsskaða og ofbeldisatvik. Þá sé það raunhæfara en stöðugt rauneftirlit. Umboðsmaðurinn segir hins vegar að meta þurfi í hverju tilfelli hvort að nauðsynlegt sé að fylgjast stöðugt með vistuðum, slíkt eftirlit feli í sér takmörkun á friðhelgi einkalífs. Í skýrslu umboðsmanns Alþingis eru teknir fram vankantar á skráningu, til að mynda skráningu muna sem eru teknir í varðveislu lögeglu, skrá um eftirlit sem haft er með vistuðum í fangaklefa og skrá um óskir handtekins manns um tilkynningu til vandamanns.
Lögreglan Fangelsismál Akranes Borgarbyggð Umboðsmaður Alþingis Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira