Verða með leiðtogaprófkjör 31. janúar Atli Ísleifsson skrifar 11. nóvember 2025 14:49 Natan Kolbeinsson er formaður Viðreisnar í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Kjörstjórn Viðreisnar í Reykjavík hefur ákveðið að kjördagur í leiðtogavali flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningarnar verði þann 31.janúar næstkomandi.
Í tilkynningu frá flokknum segir að rétt til atkvæðagreiðslu í prófkjöri hafi allir félagar í Viðreisn, sextán ára og eldri og sem hafi lögheimili í Reykjavík. Þá þurfi þeir að hafa skráð sig í Viðreisn að minnsta kosti tveimur dögum fyrir upphaf prófkjörs. Ljóst er að nýr oddviti mun leiða lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í maí þar sem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir hefur þegar tilkynnt að hún sækist ekki eftir endurkjöri. Í tilkynningunni er haft eftir Natani Kolbeinssyni, formanni Viðreisnar í Reykjavík, að hann sé spenntur fyrir komandi leiðtogavali. „Þetta er fyrsta skrefið í því að byggja upp lið sem mun tryggja Viðreisn í Reykjavík sigur í vor. Borgarbúar vilja sjá nýja tíma í borginni okkar og ætlum við okkur að svara því kalli,“ er haft eftir Natani. Meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við framboð eru Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, varaþingmaður og fyrrverandi ríkissáttasemjari, Björg Magnúsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra, og Jakob Birgisson, uppistandari og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira