Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. nóvember 2025 06:58 Málið varðar hagsmuni bæði einstaklinga sem eru trans og intersex, það er að segja með ódæmigerð kyneinkenni. Getty/Bloomberg/Al Drago Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur lagt blessun sína yfir ákvörðun ríkisstjórnar Donald Trump um að hætta að heimila einstaklingum að velja kyn í vegabréfum.
Um er að ræða ákvörðun sem mun standa á meðan málið fer í gegnum dómskerfið. Rökstuðningur meirihlutans var á þá leið að það að krefjast þess að vegabréf sýndu líffræðilegt kyn við fæðingu fæli ekki í sér brot á jafnréttislögum, ekki frekar en að krefjast þess að vegabréf sýndu það ríki þar sem viðkomandi fæddist. Minnihlutinn, Ketjani Brown Jackson, Elena Kagan og Sonia Sotomayor, gagnrýndi hins vegar að það virtist vera orðin vinnuregla hjá stjórnvöldum að biðla til hæstaréttar um inngrip, þegar aðgerðir þeirra væru stöðvaðar á neðri dómstigum. Þá sagði í minnihlutaálitinu, sem ritað var af Jackson, að meirihlutinn hefði hreinlega rangt fyrir sér. Hún hefði hafnað umleitan stjórnvalda, þar sem skaðlegar afleiðingar reglubreytingarinnar ættu augljóslega að vega þyngra en „óútskýrður“ og „óskiljanlegur“ áhugi stjórnvalda á að koma henni í gegn. Alríkisdómari í Massachusetts skipaði stjórnvöldum í sumar að setja breytingarnar á bið og heimila fólki áfram að velja kyn á vegabréfum, á meðan málið rataði sína leið í dómskerfinu. Áfrýjunardómstóll staðfesti ákvörðunina. Stjórnvöld skutu málinu þá til hæstaréttar og fóru fram á tímabundinn úrskurð. Sögðu þau meðal annars að almennir borgarar ættu ekki að geta þvingað stjórnvöld til að nota rangar upplýsingar um kyn, sérstaklega á skilríkjum sem væru eign ríkisins. Lögmenn sóknaraðilans sögðu hins vegar að breytingarnar væru til þess fallnar að svipta einstaklinga nýtanlegum skilríkjum og getunni til að ferðast örugglega.
Bandaríkin Málefni trans fólks Hinsegin Vegabréf Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira