Fjölmiðlar í kreppu Stefán Jón Hafstein skrifar 1. nóvember 2025 07:00 Enginn vafi er á því að fjölmiðlar á Íslandi eru í kreppu. Ekki bara vegna þess að ástandið í heild eða dagskrársamkeppnin milli þeirra innbyrðis hafi breyst á undanförnum árum heldur að viðskiptatækifæri og tekjumódel hafa riðlast. Þeir starfa í raunverulega alþjóðlegu umhverfi. Í fyrsta lagi hefur auglýsingamarkaðurinn gjörbreyst að undanförnu, það er að segja, tekjumöguleikar íslenskra fjölmiðla í heild. Hagstofan skýrir frá því að af 26 milljarða auglýsingamarkaði (2023) hafi um helmingur auglýsingafjár runnið úr landi til erlendra miðla. Þetta eru stórkostlegar breytingar frá því sem áður var, þegar íslenskir fjölmiðlar gátu nokkurn veginn treyst því að það fé sem varið var til auglýsinga í landinu kæmi til þeirra. Skipting milli miðla innanlands hefur líka breyst með miklu fleiri leiðum fyrir auglýsendur að ná til fólks. Dæmi eru flettiskilti og strætóskýli sem fá nú auglýsingar sem hugsanlega hefðu áður birst í útvarpi eða tímaritum. Aðalmálið er samt það að helmingurinn af öllu auglýsingafé á Íslandi streymir úr landi til fyrirtækja sem eru alþjóðleg, hafa ekki lögheimili og borga ekki skatta á Íslandi og bera í raun og veru enga menningarlega, félagslega eða pólitíska ábyrgð gagnvart Íslandi eða Íslendingum. Samfélagsábyrgð Þetta leiðir svo að hinu, að ekki er til lengur það sem einu sinni kallaðist menningarlegt fullveldi. Við erum stödd í menningarlegum ólgusjó á úthafi. Öll hafa áhyggjur af stöðu íslenskunnar, réttilega. Og áhyggjur af því einfaldlega að viðhalda og efla menningarlega og félagslega heild í landinu, ekki bara vegna þess að fólki fjölgar stöðugt sem býr hér af erlendum uppruna, heldur líka vegna þess einfaldlega að allt viðskipta- og samskiptaumhverfi okkar innbyrðis og við umheiminn tekur svo örum breytingum. Íslensk menning hefur ekki það sjálfgefna forskot sem hún hafði áður. Áfram eru aðeins 24 klukkustundir í sólarhringnum en óendanlegt framboð af heimsmarkaðsefni til að yfirtaka vökutíma okkar. Í þessum veruleika þurfum við öfluga og fjölbreytta fjölmiðla sem taka þátt í að móta og efla samfélagsleg gildi okkar í framtíðinni. Og bera lýðræðislega ábyrgð gagnvart almenningi. „Fyrirferð“ Ríkisútvarpsins Sem formaður stjórnar Ríkisútvarpsins hef ég hugsað mikið um þetta að undanförnu og fylgst með fjölmiðlaumræðunni, komið nýr að henni aftur eftir nokkra fjarveru, og verð að segja að mér finnst hún vera of þröng og einskorðuð við fáa rekstrarþætti. Aðalmálið er ekki meint „fyrirferð” Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Áætlaðar tekjur Ríkisútvarpsins af auglýsingum á næsta ári eru 2,6 milljarðar. Þetta eru 10% af heildarmarkaði auglýsinga á Íslandi miðað við tölur Hagstofunnar. Ríkisútvarpið tekur því til sín minna en fjórðung af því sem erlendir miðlar flytja úr landi, Facebook, Youtube og aðrir álíka. Allt bendir til að hlutur erlendra aukist enn meira og gæti með sömu þróun orðið um 60-70% af heildarmarkaði á nokkrum árum. Gervigreindarforritin koma nú sterk inn og hirða umferð af vefsíðum sem áður voru næsta stoppistöð á eftir Google leitarvélinni. Þetta á eftir að skaða vefmiðla á Íslandi. „Fyrirferðin“ er því þessi: Árið 2023 voru heildartekjur fjölmiðla á Íslandi um 30 milljarðar króna, og af þeim runnu um 8,1 milljarður króna til RÚV (Hagstofa Íslands). Þetta þýðir að RÚV hafði um 27% hlutdeild af öllum fjölmiðlatekjum árið 2023. Þegar aðeins er litið á auglýsingatekjur fjölmiðla var hlutdeild RÚV um 22% árið 2023 samkvæmt Hagstofunni. Þetta er alls ekki lítið enda lagalegt hlutverk Ríkisútvarpsins stórt og til þess gerðar miklar kröfur. En er þetta eitthvað sem kallast gæti kæfandi? Hvað vilja auglýsendur? Segjum að við skertum enn tekjumöguleika Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði (hamlanir eru talsverðar nú þegar) og auglýsendur þyrftu að finna 1-1,5 milljörðum aðrar leiðir. Varlega áætlað myndi hátt í milljarður fara beint til útlanda. Það er vegna þess að erlendu miðlarnir eru í sókn, enda með þróaða þjónustu og leyfa birtingar svipstundis með litlum framleiðslukostnaði. Nú eru aðeins fáir stórir auglýsendur á markaði á Íslandi og alls ekkert gefið að þeir sjái sér hag í því að fara annað innanlands verði þeim meinað frekara aðgengi að Ríkisútvarpinu. Reyndar hafa stórir auglýsendur jafnan lýst sig fylgjandi því að hafa RÚV sem vettvang. Sjálfur hef ég alltaf haft áhyggjur af of mikilli sókn Ríkisútvarpsins í auglýsingar en samtímis talið að þær gætu verið frekar smár hluti af jafnvægislist. Hvað er til ráð a? Erfitt er að fá uppgefið hve stór hlutur ríkis og sveitarfélaga og stofnana þeirra er í auglýsingum á erlendum miðlum. Ekki er ólíklegt að þar sé um að ræða um fjórðung, varlega áætlað ef við hugsum um alla þá sem reka sig fyrir opinbert fé að stórum hluta. (Dæmi: Stjórnmálaflokkar). Af 11–12 milljörðum sem fara úr landi séu ef til vill 2–3 milljarðar frá hinu opinbera. Hér vantar gögn, en ég miða við að hér sé um að ræða alla sem höndla með opinbert fé í einni eða annarri mynd. Mín tillaga, til skamms tíma, er að hið opinbera banni stofnunum sínum, undirstofnunum og styrkþegum að auglýsaí miðlum sem ekki hafa lögheimili á Íslandi og borga hér skatta. Einfalt og gott. Því miður hafa „boð og bönn” fengið á sig óverðskuldað óorð á liðnum árum sýndarfrjálslyndis. Við stoppum bíl á rauðu ljósi og höfum beltin spennt. Seljum ekki áfengi til barna og unglinga. Auglýsum ekki tóbak. Opnum ekki bakarí nema með vottun frá heilbrigðiseftirlitinu. Þessi tillaga er menningarlegt heilbrigðiseftirlit. Mér dettur ekki í hug að banna einstaklingum eða fyrirtækjum að ráðstafa aurum sínum til Mark Zukerbergs á Facebook enda býður hann upp á ágæta þjónustu. En ef ríkið er með harmkvælum að kreista nokkur hundruð umdeildar milljónir í fjölmiðlastyrki, hvers vegna ætti að dæla miklu hærri upphæðum frá hinu opinbera til alls óskyldra? Svona aðgerð verður misvel tekið en myndi skapa íslenskum miðlum tækifæri til að bjóða upp á nýjar kynningarleiðir, sem þeir hafa nú ekki verið duglegir við, enda alltaf að bítast um sama nóakroppið. Langt ímahugsunin þarf svo að koma Með smá dirfsku sem skaðar engan má búa til andrými til skamms tíma. Langtímahugsunin er eftir. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að lýðræðiskerfið eigi að halda úti fjölmiðlaþjónustu í þágu almennings. Nú frekar en nokkru sinni fyrr. Við þurfum Borgarleikhús og Þjóðleikhús og smáleikhús, Hörpu og Borgarbíó, Forlagið með allt sitt bókaval og einyrkja með ljóðabækur í hönd og við þurfum listafólk sem fær lífvænleg starfslaun þó að það sé ekki á ráðgjafaklassa. Við verðum að tíma að standa undir því að vera menningarþjóð. Þar er öflugt almannaútvarp hluti af stórri heild. Heimsyfirráð - og dau ði frjálsrar fj ö lmiðlunar Við búum í hnattvæddum fjölmiðlaheimi og fáránlegt að rífast innbyrðis um ört smækkandi hlutdeild í æ færri krónum þegar allt stefnir í heimsyfirráð örfárra manna sem íslenskir skattgreiðendur styrkja með framlögum sínum. Gefum bandaríska öldungardeildarþingmanninum Bernie Sanders orðið: ,,Elon Musk á X. N æ stríkasti mað ur í heimi, Larry Ellison, á Paramount, þar á meðal CBS, og mun hugsanlega nú taka yfir TikTok og CNN. Jeff Bezos á Washington Post og Twitch. Mark Zuckerberg á bæði Facebook og Instagram. Reyndar eru fimm ríkustu menn heims allir fj ö lmiðlaeigendur eða stj ó rnendur. Þegar við t ö lum um fákeppni í Amer í ku er það ekki aðeins ó j ö fnuð ur í tekjum og auði, það er yfirráð yfir fj ö lmiðlum og því sem bandaríska þjóðin f æ r að heyra og sjá.” Þetta er málið. Ef við tölum ekki skýrt með eigin röddu munu þessir gera það fyrir okkur. Höfundur er formaður stjórnar Ríkisútvarpsins; þessi grein er frá höfundi en ekki í nafni stjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Jón Hafstein Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun