Jamaíka býr sig undir öflugasta fellibyl sem þangað hefur ratað Kjartan Kjartansson skrifar 27. október 2025 08:53 Verkamenn byrgja fyrir glugga í Kingston á Jamaíka fyrir komu fellibylsins Melissu. AP/Matias Delacroix Fjórða stigs fellibylurinn Melissa sem stefnir nú á Jamaíka gæti styrkst enn frekar áður en hann gengur á land þar. Hann yrði þá öflugasti fellibylur sem dunið hefur á eyjunni í fleiri áratugi.
Fjórir eru þegar látnir af völdum Melissu á eyjunni Hispaníólu, þrír á Haítí og einn í Dóminíska lýðveldinu. Eins til viðbótar er saknað í síðarnefnda ríkinu. Varað er við allt að 76 sentímetra úrkomu og lífshættulegum sjávarflóðum þegar Melissa nálgast Jamaíka og gengur þar á land. Auga bylsins á að fara yfir eyjuna á morgun og þaðan yfir suðaustanverða Kúbu og til Bahamaeyja á miðvikudag. Vindhraðinn gæti náð meira en 250 kílómetrum á klukkustund, rúmum 69 metrum á sekúndu, ef spár um að Melissa nái fimmta stigi fellibylja í dag ganga eftir. Yfirmaður veðurstofu Jamaíka varar við því að björgunarstarf eftir að bylurinn gengur yfir eigi eftir að ganga hægt fyrir sig vegna aurskriða, flóða og teptra vega. Melissa yrði fyrsti fjórða stigs fellibylur sem lendir á Jamaíka á seinni árum. Síðasti stóri fellibylur sem gekk þar á land var Gilbert sem var af þriðja stigi þegar hann olli usla árið 1988.
Jamaíka Náttúruhamfarir Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjá meira