Sævar Atli neitar að fara úr markaskónum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. október 2025 18:58 Skot og mark. EPA/Paul S. Amundsen Þá með sanni segja að Breiðhyltingurinn Sævar Atli Magnússon kunni vel við sig í Bergen í Noregi. Leiknismaðurinn fyrrverandi skoraði eina markið þegar lærisveinar Freys Alexanderssonar í Brann unnu 1-0 sigur á FC Utrecht í Evrópudeildinni.
Sævar Atli hefur verið iðinn við kolann og skoraði eina mark Brann þegar það tapaði fyrir Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í Lille í 1. umferð. Sævar Atli hefur greinilega ekki farið úr markaskónum eftir þann leik og skoraði sigurmark kvöldsins eftir undirbúning Felix Myhre á 41. mínútu. Var þetta fimmta mark hans í Evrópu á leiktíðinni í aðeins sjö leikjum. Markaskorarinn var svo tekinn af velli á 63. mínútu líkt og Eggert Aron Guðmundsson sem var einnig í byrjunarliði Brann. Á sama tíma var Kolbeinn Birgir Finnsson, fyrrverandi samherji Sævars Atla hjá Lyngby í Danmörku, ekki í leikmannahóp Utrecht. Brann núna með þrjú stig að loknum tveimur leikjum í Evrópudeildinni. Í öðrum leikjum kom Daníel Tristan Guðjohnsen inn af bekknum í 3-0 tapi Malmö gegn Plzen. Daníel Tristan fékk rautt spjald í uppbótatíma fyrir olnbogaskot. Arnór Sigurðsson sat allan tímann á bekknum hjá Malmö. Sögu sömu er að segja af Sverri Inga Ingasyni, miðverði gríska liðsins Panathinaikos, í leik sem tapaðist 1-2 gegn Go Ahead Eagles frá Hollandi. Hákon Arnar Haraldsson skoraði þá sigurmark Lille gegn Roma í Rómarborg. Markvörður Lille tók þó fyrirsagnirnar með því að verja þrjár vítaspyrnur í leiknum. Meira um það hér.
Fótbolti Evrópudeild UEFA Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Kanada - Katar | Sigur væri gulls ígildi fyrir bæði lið Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum Grindavík/Njarðvík - Stjarnan | Sæti í undanúrslitum undir María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Spila æfingarleik á meðan HM stendur Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Sjá meira