Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi Samúel Karl Ólason skrifar 22. september 2025 12:18 Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu. AP/KCNA Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segist opinn fyrir nýjum viðræðum við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Með þeim skilyrðum að Bandaríkjamenn hætti að krefjast þess að Kim láti kjarnorkuvopn sín af hendi. Það segist hann aldrei ætla að gera.
Einræðisherrann telur, samkvæmt sérfræðingum, að kjarnorkuvopnin tryggi að ekki sé hægt að velta honum úr sessi og að þau tryggi áframhaldandi yfirráð fjölskyldu hans yfir Norður-Kóreu um árabil. „Heimurinn veit nú þegar fullvel hvað Bandaríkin gera eftir að þau þvinga önnur ríki til að gefa upp kjarnorkuvopn sín og afvopnast,“ sagði Kim samkvæmt AP fréttaveitunni. „Við munu aldrei leggja niður kjarnorkuvopn okkar. Það verða engar viðræður, hvorki núna né í framtíðinni, um að gefa eitthvað eftir gagnvart óvinveittum löndum í skiptum yfir niðurfellingu viðskiptaþvingana.“ Þetta er meðal þess sem Kim sagði í ávarpi á þingi Norður-Kóreu í gær. Þar sagðist hann einnig aldrei ætla að hefja aftur viðræður við yfirvöld í Suður-Kóreu en hann sleit á mestöll samskipti ríkjanna árið 2019, eftir seinni fund hans og Trumps. Í ávarpi sínu talaði Kim einnig um góðar minningar sínar af fundum með Trump og að í raun stæði ekkert í vegi frekari funda, nema krafa Bandaríkjamanna varðandi kjarnorkuvopnin, samkvæmt Yonhap fréttaveitunni frá Suður-Kóreu. Aukin spenna á Kóreuskaga Trump og Kim funduðu síðast í Víetnam árið 2019. Fundurinn var mun styttri en til stóð og lauk honum um tveimur tímum á undan áætlun. Aldrei hefur komið almennilega í ljós af hverju fundinum lauk svo snemma, að öðru leyti en að það hafi verið vegna deila um hvaða skilyrði Norður-Kórea þyrfti að fallast á fyrir niðurfellingu refsiaðgerða. Ríkið hefur verið beitt umfangsmiklum aðgerðum vegna kjarnorkuvopnaþróunar þess að tilrauna með langdrægar eldflaugar sem eiga að geta borið kjarnorkuvopn. Tiltölulega fljótt eftir fundinn hóf Kim aftur tilraunir með kjarnorkuvopn. Eftir fundinn rifti hann líka flestum samskiptum við Suður-Kóreu. Sjá einnig: „Selir“ skutu óvopnaða borgara í leyniaðgerð í Norður-Kóreu Spenna hefur aukist nokkuð á Kóreuskaganum á undanförnum árum, samkvæmt AP fréttaveitunni. Kim hefur staðið í töluverðri hernaðaruppbyggingu og auknu samstarfi við yfirvöld í Rússlandi. Yfirvöld í Suður-Kóreu hafa áhyggjur af því að aðgengi að rússneskri tækni geti gert Kim auðveldara að nútímavæða herafla sinn. Sjá einnig: Skotflaugar frá Norður-Kóreu orðnar nákvæmari Í ræðu sinni sagði Kim að hann myndi aldrei ræða sameiningu við yfirvöld Í Suður-Kóreu. Sameining væri „óþörf“. Ný ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur reynt að bæta samskipti ríkjanna en með litlum sem engum árangri. Þá hótaði hann að beita kjarnorkuvopnum sínum gegn Suður-Kóreu ef til stríðs kæmi á Kóreuskaga. Vísaði Kim einnig til nýrra leynivopna sem hann hefði öðlast, án þess þó að fara út í hver þau gætu verið.
Norður-Kórea Suður-Kórea Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Pútín og Xi ræddu ódauðleika í gegnum líffæragjöf Hljóðnemi sem kveikt var á tók upp stutt samtal Vladímírs Pútín Rússlandsforseta og Xi Jinping forseta Kína þar sem þeir ræddu um það að líffæragjöf gæti einn daginn veitt ódauðleika á stærðarinnar hersýningunni sem fór fram í Peking í dag. 3. september 2025 23:19 „Furðuutanríkisstefna“ Trump hafi rekið Indland í fangið á Kínverjum Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir „furðuutanríkisstefnu“ Bandaríkjaforseta hafa rekið Indverja í fangið á Kínverjum. Nýlegur fundur leiðtoga Rússlands, Kína, Indlands og fleiri ríkja í Tianjin og stærðarhersýning beint í kjölfarið sé vottur um vaxandi spennu í heiminum. 3. september 2025 22:43 Leiðtogar Rússlands, Írans og Norður-Kóreu viðstaddir kínverska hersýningu Leiðtogar Rússlands, Írans og Norður-Kóreu verða allir viðstaddir umfangsmikla hersýningu sem Kínverjar halda til þess að minnast þess að áttatíu ár eru liðin frá uppgjöf Japana í heimstyrjöldinni síðari. 2. september 2025 08:55 Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Þúsundir Norður-Kóreumanna hafa verið sendir til Rússlands, þar sem þeir segja komið fram við þá eins og þræla. Þar eru þeir látnir vinna við húsasmíðar og í verksmiðjum, svo eitthvað sé nefnt, og eru þeir látnir vinna gífurlega langa daga og nánast án frídaga. 12. ágúst 2025 16:36 Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Sjá meira
Pútín og Xi ræddu ódauðleika í gegnum líffæragjöf Hljóðnemi sem kveikt var á tók upp stutt samtal Vladímírs Pútín Rússlandsforseta og Xi Jinping forseta Kína þar sem þeir ræddu um það að líffæragjöf gæti einn daginn veitt ódauðleika á stærðarinnar hersýningunni sem fór fram í Peking í dag. 3. september 2025 23:19
„Furðuutanríkisstefna“ Trump hafi rekið Indland í fangið á Kínverjum Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir „furðuutanríkisstefnu“ Bandaríkjaforseta hafa rekið Indverja í fangið á Kínverjum. Nýlegur fundur leiðtoga Rússlands, Kína, Indlands og fleiri ríkja í Tianjin og stærðarhersýning beint í kjölfarið sé vottur um vaxandi spennu í heiminum. 3. september 2025 22:43
Leiðtogar Rússlands, Írans og Norður-Kóreu viðstaddir kínverska hersýningu Leiðtogar Rússlands, Írans og Norður-Kóreu verða allir viðstaddir umfangsmikla hersýningu sem Kínverjar halda til þess að minnast þess að áttatíu ár eru liðin frá uppgjöf Japana í heimstyrjöldinni síðari. 2. september 2025 08:55
Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Þúsundir Norður-Kóreumanna hafa verið sendir til Rússlands, þar sem þeir segja komið fram við þá eins og þræla. Þar eru þeir látnir vinna við húsasmíðar og í verksmiðjum, svo eitthvað sé nefnt, og eru þeir látnir vinna gífurlega langa daga og nánast án frídaga. 12. ágúst 2025 16:36