Kjötsúpa í boði á Hvolsvelli fyrir alla sem vilja Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 30. ágúst 2025 12:12 Allir eru velkomnir á Hvolsvöll um helgina til að taka þátt í Kjötsúpuhátíðinni miklu. Magnús Hlynur Hreiðarsson Kjötsúpa mun flæða um Hvolsvöll og næsta nágrenni um helgina því Kjötsúpuhátíð stendur yfir á svæðinu þar sem allir geta fengið eins mikið af ókeypis kjötsúpa eins og þeir geta í sig látið. Fjölmörg skemmtiatriði verða einnig í boði og risa grillveisla í dag svo eitthvað sé nefnt.
Kjötsúpuhátíðin hófst formlega á miðvikudagskvöld þar sem bændurnir á bænum Stóru Mörk undir Eyjafjöllum buðu öllum, sem vildu í kjötsúpu heim til sín og mættu um 300 manns þangað. Sóli Hólm var með uppistand í risa tjaldi á miðbæjartúninu á Hvolsvelli á fimmtudagskvöld og í gærkvöldi var súpurölt þar sem íbúar og gestir fóru á milli húsa til að smakka á kjötsúpu eða einhverri annari súputegund. Sigmundur Páll Jónsson er markaðs- og kynningarstjóri Rangárþings eystra og veit því allt um Kjötsúpuhátíðina. „Á eftir klukkan 14:00 hefst fjölskylduhátíðin inn í tjaldinu á miðbæjartúninu en þar verða til dæmis strákarnir í Væb og Anna í Frozen og allskonar. Svo eru viðburðir um allan bæ. Það eru tónleikar í Unu og það voru tónleikar í Eldstó á fimmtudaginn og svo verður ball með Stuðlabandinu í kvöld og engin önnur en Guðrún Árný ætlar að hita upp með brekkusöng í kvöld,“ segir Sigmundur. Sigmundur Páll Jónsson, markaðs- og kynningarstjóri Rangárþings eystra, sem er allt í öllu varðandi Kjötsúpuhátíðina á Hvolsvelli um helgina.Magnús Hlynur Hreiðarsson Sigmundur segir að það sé frítt inn á alla viðburði á hátíðinni og það kunni gestir sérstaklega vel að meta. „Við viljum bara sýna fram á það hversu gott er að búa í Rangárþingi eystra og íbúar taka virkan þátt í öllu,“ segir hann. Og kjötsúpa flæðir yfir allt hér eða hvað? „Já, já, Kjötsúpan flæðir um allt og það eru reyndar allskonar súpur en mjög mikið af kjötsúpu og það er kjöt í súpunni“, tekur Sigmundur skýrt fram skellihlæjandi. Kjötsúpuhátíðin verður 20 ára á næsta ári og þá segir að Sigmundur að hátíðin verði sérstaklega vegleg og flott. En hversu mikilvægt er að halda svona bæjarhátíð eins og á Hvolsvelli? „Þetta er gríðarlega mikilvægt, bara hrista saman fólkið þannig að fólk finni fyrir því að við stöndum saman öll hérna í að gera bæinn okkar skemmtilegan og fallegan og þetta hristir saman göturnar í skreytingum og bjóða upp á súpur. Þetta er gríðarlega mikilvægt,“ segir Sigmundur Páll. Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar Aðalheiður Ásgeirsdóttir, bóndi á Stóru Mörk III undir Eyjafjöllum við Kjötsúpupottinn en á milli 200 og 300 manns komu á bæinn á fimmtudagskvöld til að fá sér ókeypis Kjötsúpu.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Rangárþing eystra Menning Landbúnaður Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Sjá meira