Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2025 10:44 Ferðamaðurinn (ekki á mynd) hafði ekið fram á bleytur í slóðanum við Hagavatn og ákveðið að krækja framhjá þeim, en ekki vildi þá betur til en svo að bíllinn festist í aurbleytu. Landsbjörg Björgunarsveitir í uppsveitum Árnessýslu voru boðaðar út vegna ferðamanns sem talinn var í vændræðum í nágrenni við Hagavatn upp úr klukkan 20 í gærkvöldi.
Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að þar hafi verið erlendur ferðamaður einn á ferð, en sökum tungumálaörðugleika hafi verið óljóst hvar hann var staddur og hvers konar vandræðum hann væri í. „Þegar björgunarsveitir voru komnar vel áleiðis barst nákvæmari staðsetning frá Neyðarlínu og því ekki lengur um leit að ræða, eins og leit út fyrir í upphafi. Landsbjörg Ferðamaðurinn var þá staddur suður af Hagavatni og hafði farið slóða frá Skjaldbreiðarvegi, vestan við Brekknafjöll. Þar hafði hann ekið fram á bleytur í slóðanum og ákveðið að krækja framhjá þeim, en ekki vildi þá betur til en svo að bíllinn festist í aurbleytu, á svæði sem er nýlega komið undan jökli. En bíllinn var ekki bara fastur, heldur hafði einnig rifnað dekk og því ljóst að ferð yrði ekki haldið áfram. Landsbjörg Björgunarsveitir nýttu sérstakan loftpúða til að lyfta bílnu í aurbleytunni og skipta um dekk og í framhaldinu var hann dreginn upp úr festunni. Ferðamanni var svo fylgt niður að Geysi þar sem hann hélt áfram för á eigin vegum og björgunarsveitir héldu heim,“ segir í tilkynningunni. Landsbjörg
Bláskógabyggð Björgunarsveitir Ferðaþjónusta Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira