Ráðin til Fossa fjárfestingarbanka Atli Ísleifsson skrifar 20. ágúst 2025 08:22 Ástrós Björk Viðarsdóttir og Arnór Brynjarsson. Fossar fjárfestingarbanki hefur ráðið tvo nýja starfsmenn á svið fyrirtækjaráðgjafar bankans. Ástrós Björk Viðarsdóttir er nýr verkefnastjóri og Arnór Brynjarsson sérfræðingur.
Í tilkynningu segir að Ástrós Björk búi að yfir tuttugu ára reynslu á fjármálamarkaði, aðallega í fyrirtækjaráðgjöf þar sem hún hafi stýrt og tekið þátt í fjölmörgum veigamiklum verkefnum í íslensku atvinnulífi. „Hún hefur einnig reynslu sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri, meðal annars sem fjármálastjóri fasteignafélagsins Íþöku. Á árunum 2004 til 2013 starfaði Ástrós í Landsbankanum, fyrst við greiningu á fyrirtækjum og efnahagsmálum en síðar í fyrirtækjaráðgjöf. 2013 færði hún sig yfir í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og starfaði þar til 2021. Ástrós er með grunn og framhaldsmenntun í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa lokið námi í verðbréfaviðskiptum. Arnór kemur til Fossa frá KPMG í Kaupmannahöfn þar sem hann starfaði við fyrirtækjaráðgjöf á árunum 2022-2025. Þar áður starfaði hann sem greinandi hjá Copenhagen Offshore Partners, á fjármálasviði Arion Banka og sem dæmatímakennari við Háskólann í Reykjavík. Arnór er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavik og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Copenhagen Business School. Þá hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum,“ segir í tilkynningunni. Um Fossa fjárfestingarbanka segir að hann veiti innlendum og erlendum fjárfestum þjónustu á sviði miðlunar fjármálagerninga, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. „Fossar bjóða sérsniðna og persónulega þjónustu og eru í fararbroddi þegar kemur að tengingu íslensks atvinnulífs við alþjóðlegt fjárfestingarumhverfi. Eins leggja Fossar mikið upp úr því að vera í fararbroddi íslenskra fyrirtækja í samfélagslegri ábyrgð og sjálfbærni, jafnt í eigin starfsemi sem í gegnum víðtæk áhrif starfseminnar á viðskiptavini og aðra. Til dæmis hafa Fossar verið brautryðjandi í umsjón með útgáfu grænna skuldabréfa á Íslandi. Fossar, sem stofnaðir voru 2015, tilheyra samstæðu Skaga.“
Vistaskipti Fjármálafyrirtæki Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira