Brøndby brennir skipin: „Verðum að sækja og svo verðum við að sækja meira“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. ágúst 2025 15:46 Daníel og Daniel í fyrri leiknum, Hafsteinsson og Wass. vísir Brøndby verður að sækja til sigurs gegn Víkingi á morgun og nú hefur fyrirliði liðsins blásið í sóknarlúðrana. Hann segir Brøndby ætla að sækja og sækja svo meira, án þess að líta aftur um öxl.
Brøndby er 3-0 undir eftir fyrri leikinn á Víkingsvelli í síðustu viku. Dönunum þykir mjög vandræðalegt að hafa tapað leiknum og mögulega einvíginu í leiðinni, en svo bætist aukin pressa ofan á lið Brøndby vegna þess að stjórnarmenn félagsins eru nú þegar búnir að gera ráð fyrir Evrópupeningum í fjármálaáætlun næsta árs. Nokkuð ljóst er að liðið mun leggja upp með mikinn sóknarbolta og fyrirliðinn Daniel Wass staðfesti það við Ekstra Bladet eftir æfingu Brøndby fyrr í dag. „Við verðum að sækja og svo verðum við að sækja meira, við megum ekki líta aftur um öxl“ sagði Daniel. Daniel hefur líklega aldrei heyrt um að brenna skipin, orðatiltækið sem hefur slegið í gegn í íslenska boltanum, í sumar en Brøndby ætlar sannarlega að gera það. „Við erum með varnarmenn sem ráða við þetta, þannig að við verðum að ýta liðinu hátt upp völlinn“ sagði Daniel en þó er ljóst að líkt og í fyrri leiknum verður liðið án miðvarðarins Daniels Alves. Brøndby spilar með þriggja manna varnarlínu en Daniel vildi ekki gefa upp nákvæmlega hvað planið væri gegn Víkingum. „Það er líklega best að ég segi ekki of mikið. Við viljum ekki gefa frá okkur öll brögðin í bókinni, en aðalatriðið er að við gerum þetta saman sem lið. Sama hvernig fer.“ Rætt verður við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, í Sportpakka Sýnar að loknum fréttum í kvöld. Leikur Brøndby og Víkings verður svo í beinni textalýsingu á Vísi á morgun.
Sambandsdeild Evrópu Danski boltinn Víkingur Reykjavík Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira