Erlent

„Stóra fal­lega frum­varpið“ í gegn á einu at­kvæði

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þingflokksformaður repúblikana í öldungadeildinni John Thune fyrir miðju.
Þingflokksformaður repúblikana í öldungadeildinni John Thune fyrir miðju. AP/J. Scott Applewhite

„Stóra og fallega frumvarpið“ er skrefi nær því að verða að lögum eftir að öldungadeild Bandaríkjaþings greiddi atkvæði með því. Frumvarpið felur í sér stórfelldan niðurskurð á útgjöldum alríkisstjórnarinnar og billjóna dala skattalækkanir sem Bandaríkjaforseti hefur bundið miklar vonir við.

Enn er þó ekki ljóst hvort fulltrúadeild þingsins samþykki þær breytingar sem gerðar voru á frumvarpinu í meðferð öldungadeildarinnar. Í neðri deildinni voru fyrstu drög að frumvarpinu samþykkt með eins atkvæðis meirihluta. Þó Repúblikanaflokkurinn búi yfir meirihluta í báðum deildum þurfti forysta flokksins að hafa talsvert fyrir því að fá frumvarpið í gegn.

Róttækur niðurskurður samhliða umfangsmiklum skattalækkunum

Harðlínu- og hófsamari repúblikanar hafa lýst yfir óánægju með liði frumvarpsins. Til eru þeir sem telja frumvarpið ekki ganga nógu langt í yfirlýstum markmiðum sínum um skattalækkanir og niðurskurðarstefnu, það þrátt fyrir að niðurskurður í heilbrigðismálum muni leiða til þess að hátt í tólf milljónir landsmanna til viðbótar verði án sjúkratrygginga en ella árið 2034. Á sama tíma áætlar fjárlagaskrifstofa Bandaríkjaþings að frumvarpið auki fjárlagahalla ríkisins um 3,3 billjónir dala á þessum áratug. Það eru íslenskar billjónir, milljón milljónir.

Innan flokksins eru jafnframt þingmenn repúblikana úr vígjum Demókrataflokksins sem yrðu ekki vinsælir heima fyrir ef þeir mótmæltu ekki umdeildum skattalækkunum. Bandaríkjaforseti hefur gefið flokksbræðrum sínum frest til þjóðhátíðardagsins 4. júlí að samþykkja frumvarpið.

Teflt á tæpasta vaði

Niðurstaða öldungadeildarinnar lá fyrir um hádegisbilið að staðartíma en J.D. Vance varaforseti greiddi úrslitaatkvæðið. Þrír öldungadeildarþingmenn repúblikana greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Forseti öldungadeildarinnar og þingflokkur repúblikana gáfu út yfirlýsingu að atkvæðagreiðslunni lokinni.

„Repúblikanar voru kjörnir til að gera nákvæmlega það sem frumvarpið felur í sér: tryggja landamæravörslu, gera skattalækkanir varanlegar, stuðla að orkuyfirburðum Bandaríkjanna, endurreisa frið með styrk, draga úr sóun opinbers fjár og færa stjórn landsins aftur til þeirra sem setja Bandaríkjamenn í fyrsta sæti. Þetta frumvarp er stefna Trump forseta og við erum að lögfesta hana,“ er haft eftir Mike Johnson forseta öldungadeildarinnar.

Trump hefur lofað því að frumvarpið verði að lögum fyrir þjóðhátíðardaginn fjórða júlí.AP/Mark Schiefelbein

Frumvarpið fer nú fyrir fulltrúadeild Bandaríkjaþings þar sem það mun eiga erfitt uppdráttar. Málið verður tekið fyrir á miðvikudaginn og búist er við því að það mæti þar harðri mótspyrnu. Demókratar eru einróma í andstöðu sinni og hætt er að hófsamari repúblikanar svíki lit. Repúblikanar hafa aðeins efni á að þrír úr þeirra röðum greiði atkvæði gegn frumvarpinu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vilja ná frumvarpinu í gegnum fulltrúadeildina sem allra fyrst svo hægt verði að lögfesta það á föstudaginn sem er þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×