Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2025 09:17 Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans, Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri Verzlunarskólans, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu og Guðríður Hrund Helgadóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi, segja það hafa verið stress að koma öllum að en það hafi gengið með samhentu átaki. Vísir Framhaldsskólarnir fjölguðu flestir innrituðum nemendum um tíu prósent miðað við fyrri ár til að koma öllum að í haust. Skólameistarar segja það hafa verið ærið verkefni en hafi tekist með því að fjölga í bekkjum og hópum. Innritunarárgangurinn fæddist árið 2009. Þá fæddust 5.026 börn á Íslandi og hafa aldrei fæðst jafn mörg börn á einu ári hérlendis.
Fram kom í fréttum fyrir viku að innritun nýnema úr grunnskóla væri lokið og að með samstilltu átaki skóla og yfirvalda hefði tekist að koma öllum að sem sóttu um. 5.131 nýnemar sóttu um innritun í framhaldsskóla í ár eða 554 fleiri en í fyrra. Þar með talið eru allir nemendur sem sóttu um starfsbrautir. „Ég var svo stressuð, og ég held líka skólameistararnir. Þetta er rosalega mikil stækkun, þetta er yfir tíu prósent fleiri. Skólameistararnir eru algjörir snillingar. Það voru allir sammála um að gera allt sem þeir gátu. Það þurftu allir að stækka um tíu prósent til að ráða við þetta. Við erum ótrúlega ánægð með þetta, því þetta hefur oft verið snúið,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, MMS, um innritun nýnema í framhaldsskóla sem lauk fyrir viku. Þórdís Jóna viðurkennir að hún hafi verið orðin dálítið stressuð en er mjög fegin að allir sem vildu fengu skólavist. Vísir/Arnar Þórdís Jóna segir mörg ungmennanna hafa valið sér skóla nærri sinni heimabyggð. Dreifingin sé mikil og því hafi þetta gengið upp. „Ef þú horfir á alla landsbyggðina eru þar börn og ungmenni að velja skóla í sinni heimabyggð, og þau eðlilega, fá sinn skóla. Það eru mjög mörg sem vilja vera í framhaldsskóla sem er nálægt heimili sínu,“ segir Þórdís Jóna. Þannig hafi börn í Mosfellsbæ valið Framhaldsskólann í Mosfellsbæ og börn í Hafnarfirði valið Flensborg. „Langstærstur hluti fer í þann skóla sem hugur þeirra stefnir til. Þau eru að verða mjög taktísk með það, þegar þau eru að velja á milli,“ segir hún og að þannig velji ungmennin frekar skóla sem líklegt sé að þau komist inn í. Nemendur settu þrjá skóla í val og kom einnig fram í tilkynningu að 4.136 nemendur fengu pláss í þeim skóla sem þeir völdu í fyrsta vali eða um 80 prósent. Þrettán prósent, eða 669, fengu inn í sitt annað val og um fjögur prósent, eða 122 nemendur, fengu inn í sitt þriðja val. Þá kom fram að 2,3 prósent nemenda, 122, fengu inn í skóla sem þeir völdu ekki en voru með laus pláss. Í tilkynningu kom fram að þetta hlutfall væri lægra en fyrri ár vegna þess að nemendum var gefinn kostur á að velja þrjá skóla í stað tveggja. „Með því að bæta við þriðja vorum við reyna að auka líkurnar á því að nemendur væru að fá skóla sem þeir vildu. Þetta verður svo snúið þegar við erum að finna skóla fyrir nemendur. Það er áskorun.“ Samkvæmt gögnum MMS settu flestir Verzlunarskóla Íslands, Tækniskólann og Menntaskólann í Kópavogi í fyrsta val. Alls settu 621 Verzlunarskólann í fyrsta val, 439 Tækniskólann, 385 Menntaskólann í Kópavogi og 363 Kvennaskólann í Reykjavík í fyrsta val. Ekki öll börn eigi sama drauminn Þegar fyrsta, annað og þriðja val er tekið saman var Menntaskólinn í Kópavogi, MK, efstur á lista. Alls merktu 1.134 við MK í sinni umsókn, 1.073 við Tækniskólann og 1.071 við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Hafa verður í huga í þeim samanburði að tæplega helmingur nemenda setur skóla í þriðja val og lítill fjöldi nýtir sér þriðja valið enda fá langflest inn í fyrsta vali eða þá öðru vali. „Menntaskólinn í Kópavogi er vinsælasti skólinn í dag. Þau eru með margar starfsbrautir og afreksbraut. Tækniskólinn stærsti skólinn, það eru flestar umsóknir samþykktar þar. Það er mjög mikið af ungu fólki sem velur að taka starfsnám samhliða stúdentsprófinu. Það eru ekkert endilega þessir gömlu klassísku skólar sem eru stærstir eða vinsælastir. Umræðan verður oft alveg ofboðslega einstrengingsleg og einhæf, eins og öll börn eigi sama drauminn um að fara í Verzló eða MR. Það er mjög langt frá raunveruleikanum,“ segir Þórdís. Ný innritunargátt MMS var tekin í notkun í ár en hún er þróuð í samstarfi við Stafrænt Ísland. Þórdís segir hana hafa bætt þjónustu við umsækjendur og öryggi í umsóknarferlinu til muna. Hún segir skólameistarana einnig hafa haft betri yfirsýn yfir þær umsóknir sem voru hjá þeim og getað raðað þeim betur niður. „Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt verkefni. Við erum með miklu betri yfirsýn yfir allt ferlið og getum núna greint meira af gögnum og séð betur þróunina á milli ára. Það var auðvelt að bæta við þriðja valinu.“ Verzlunarskólinn vinsælastur í fyrsta vali Verzlunarskólinn tekur næsta haust við 388 nýnemum úr grunnskóla. Alls sóttu 890 nemendur um í skólanum, þar af 621 sem settu skólann í fyrsta val. Ef litið er til fyrsta vals var Verzlunarskólinn sá vinsælasti meðal ungmenna í árganginum. Verzlunarskólinn innritar 44 prósent þeirra nemenda sem sóttu um í skólann. Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, segir að næsta vetur verði afar þétt setið innan skólans. „Ég held að allir skólar hafi lagst á eitt að fjölga plássum hjá sér og spenna bogann. Þetta er risastór árgangur en það verður gaman að taka við þeim í skólann,“ segir Guðrún Inga í samtali við fréttastofu. Hún segir að til þess að koma fleiri nemendum að sé nemendum í hverjum bekk fjölgað um tvo. „Við erum með fjórtán bekki og við það að setja tvo til viðbótar í hvern bekk vorum við komin með 28 aukanemendur. Það verður þétt setið í skólastofunni.“ Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri Verslunarskólans fjölgaði nemendum í hverjum bekk til að koma fleiri nemendum að. Vísir/Arnar Guðrún segir fjölgunina ekki hafa verið mögulega nema vegna sérstakrar heimildar sem fékkst frá mennta-og barnamálaráðuneytinu til að taka við fleirum og vilyrði um að fá fjármagn myndi fylgja. „Skólarnir fá fjárheimildir fyrir ákveðnum fjölda nemenda og það kom grænt ljós frá stjórnvöldum að við fengjum að taka við fleirum, því árgangurinn er svo stór.“ Níu prósent árgangsins í Tækniskólann í haust Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans segir þau aldrei hafa tekið á móti svo mörgum nýnemum úr grunnskóla áður. Alls hefja nám við Tækniskólann í haust um 470 slíkir nýnemar. Það er um níu prósent árgangsins sem er að hefja nám í framhaldsskóla. Næstflestar umsóknir bárust í Tækniskólann eða alls 1074. Þar af settu 439 ungmenni skólann í fyrsta val eða um 41 prósent þeirra sem sóttu um. Skólinn var auk þess með flesta nemendur sem settu skólann í fyrsta eða annað val og gæti gert tilkall til titilsins vinsælasti skólinn. „Við höfum aldrei verið með jafnstóran nýnemaárgang.“ Hildur segir þessa aukningu þýða fjölgun hópa og töluverða þjöppun til að mæta árganginum og beiðnum ráðuneytisins. Hún segir líklegt að þörf verði á að ráða inn fleiri kennara en að þessi fjölgun nýnema úr grunnskóla þýði einnig að færri eldri nemendur komast að. Hildur segir margt áhugavert við innritun í ár. Til dæmis hafi verið gífurleg aðsókn í rafiðngreinar og byggingargreinar og þá sérstaklega pípulagningar. Þá sé hársnyrtiiðn mjög vinsæl. Tækniskólinn hefur aldrei tekið við fleiri nýnemum úr grunnskóla. Vísir/Ívar Fannar „Það eru allir að reyna að mæta þessu sem best. Það er ekki hægt að taka alla inn en við erum að taka töluvert fleiri en við höfum gert áður, úr grunnskóla. Þetta er búið að vera mikið púsluspil. Það verður þétt setið. Þetta er hátt í tíu prósent árgangsins og við hlökkum til að taka á móti þeim.“ Flestir settu Menntaskólann í Kópavogi á blað Menntaskólinn í Kópavogi var vinsælasti skólinn sé miðað við fjölda nemenda sem setti skólann í fyrsta, annað eða þriðja val. Alls sóttu þannig 1135 nemendur um skólavist í Menntaskólanum í Kópavogi en samkvæmt gögnum MMS eru teknir inn 278 nemendur. Guðríður Hrund Helgadóttir skólameistari skólans segir stjórnendur önnum kafna þessa dagana að koma öllum að innan skólans. Áður fyrr hafi þau dregið markmið við 250 nemendur en eru nú að taka við 278 sem er um 11 prósenta fjölgun nemenda. „Það hefur mikið gerst á örfáum árum hjá okkur og ég held það hafi hafist með afrekssviðinu. Það er mjög vinsælt. Það eru ofboðslega góðir kennarar hérna og gott andrúmsloft.“ Á afrekssviði fá afreksíþróttamenn tækifæri til að stunda bóklegt og verklegt nám samhliða þeirri íþrótt sem þeir stunda. Þau fá sérstaka fræðslu til dæmis frá sjúkraþjálfara hvernig á að forðast meiðsli og næringarfræðing auk þess sem tillit er tekið til þess þegar námið er orðið of þungt samhliða æfingum eða æfingarnar of margar til að halda í við námið. Kennarar og þjálfarar eru þannig í góðu samstarfi til að tryggja að álagið sé hæfilegt. Helmingur sækir um á afrekssviði „Þessi krakkar vilja ná árangri í bæði námi og íþróttum. Það er vel haldið utan um þau hér í samvinnu við íþróttafélögin í Kópavogi. Þetta er eitthvað sem hefur ýtt undir vinsældir skólans og stór hluti þeirra sem sækir um hjá okkur sækir um að vera á afrekssviði. Um fimmtíu prósent nýnema núna sóttu um að vera á afrekssviði.“ Guðríður segir miður að það sé ekki pláss fyrir alla sem sóttu um. Það sé raðað inn eftir einkunn og dregin lína þegar ekki fleiri komast inn. Það sé því ekki verið að hafna neinum, það sé einfaldlega ekki pláss. Alls hefja nám um 278 nemendur í MK í haust. Eins og áður sagði sóttu 1.135 um, þar af settu 385 skólann í fyrsta val, 477 í annað val og 273 í þriðja val. Til samanburðar má nefna að árið 2023 settu 260 skólann í fyrsta val og 390 í annað val, það er samanlagt 650. Í fyrra settu 349 skólann í annað val en 312 í annað val. Alls sóttu þannig 661 um í skólann. Í ár var í fyrsta sinn hægt að setja þriðja valið inn en allur gangur var á því hvort nemendur settu skóla í þriðja val eða ekki. Guðríður Hrund Helgadóttir skólameistari Menntaskólans í Kópavogi segir það gleðiefni að skólinn sé svo vinsæll en það geri það ekki auðveldara að segja nei. Vísir/Anton Brink Guðríður segir það þó ekki þannig að aðeins séu teknir inn nemendur sem settu skólann í fyrsta val. „Það eru bara einkunnir sem skipta máli. Öllum er raðað í einkunnaröð og ef einhver er til dæmis með Versló í fyrsta val og okkur í öðru en kemst ekki inn í Versló en er með súpereinkunnir, þá kemst hann inn hjá okkur því hann er með betri einkunn en einhver sem var með okkur í fyrsta vali og er fyrir neðan hann. Það skiptir ekki máli hvort þú ert með skólann í fyrsta, öðru eða þriðja vali. Þetta snýst bara um einkunnir. Við sjáum ekki nöfn eða neitt. Nemendur fá raðnúmer með einkunn og svo er raðað.“ Guðríður segir þau aldrei hafa tekið við fleirum í skólann en hún hefði þó viljað sjá fleiri sækja um í grunndeild matvæla- og ferðagreina. 26 eru teknir inn í ár. Fleiri voru á móti teknir inn í bóknámið. „Þetta er fyrir nýnema í 10. bekk. Þau byrja á því að kynnast matvælagreinunum með því að læra bakstur, kjötiðn og matreiðslu og framleiðslu. Þau fá þannig nasaþefinn af öllum þessum greinum á einu ári. Eftir það aðstoðum við þau að komast á samning á vinnustöðum. Svo koma þau aftur í matreiðslu, bakstur eða þjóninn. Við hefðum viljað fá fleiri á þá braut því það vantar í atvinnulífið fagmenntað fólk í þessum greinum.“ Guðríður segir það flókið verkefni að koma öllum að þau muni finna lausn á því. „Það er ekki einfalt að koma þeim öllum að en við erum að vinna í þessu. Það er auðvitað gleðiefni að skólinn sé svona vinsæll en þetta er krefjandi. Á sama tíma fyllast líka pósthólfin frá svekktum foreldrum sem vildu koma börnunum sínum í skólann. Við skiljum það en það bara var ekki hægt að koma öllum að.“ Hún segir jákvætt að allir í árganginum hafi fengið skólapláss en það sé alltaf hluti sem fær ekki það sem hann óskaði sér mest. „Margir sem jafnvel voru með mjög góðar einkunnir, þannig þetta var ekki auðvelt fyrir þennan árgang. Auðvitað langaði okkur að taka við öllum en það er því miður ekki hægt.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Reykjavík Grunnskólar Kópavogur Tengdar fréttir Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Allir nýnemar úr stærsta útskrifarárgangi grunnskóla í sögunni eru komnir með pláss í framhaldsskóla í haust. 20. júní 2025 15:35 Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sjá meira
Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Allir nýnemar úr stærsta útskrifarárgangi grunnskóla í sögunni eru komnir með pláss í framhaldsskóla í haust. 20. júní 2025 15:35