Stígur Diljan ristarbrotin og missir af Evrópuleikjunum Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2025 10:33 Stígur Diljan Þórðarson missir af næstu leikjum Víkings en ætti að snúa aftur af fullum krafti í ágúst. vísir Víkingar og hinn ungi Stígur Diljan Þórðarson hafa orðið fyrir áfalli því Stígur mun ekki geta spilað fótbolta næstu átta vikurnar eftir að hafa brotið bein í rist.
Frá þessu er greint á Fótbolta.net í dag þar sem segir að Stígur hafi ekki getað klárað leikinn gegn KR á mánudaginn vegna meiðslanna, eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 82. mínútu. Meiðslin þýða að Stígur verður frá keppni fram í miðjan ágúst og hann mun því missa af fjölda mikilvægra leikja með Víkingum, meðal annars í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Stígur missir af deildarleikjum við KA, Aftureldingu, ÍBV, Val, Fram og FH en gæti mögulega verið klár þegar Víkingar mæta Stjörnunni 10. ágúst eða ÍA 17. ágúst. Þá missir hann af leikjunum við Malisheva frá Kósovó í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar, 10. og 17. júlí, og ef Víkingar komast áfram missir Stígur einnig af leikjunum í 2. umferð 24. og 31. júlí, við annað hvort Vllaznia frá Albaníu eða Daugavpils frá Lettlandi. Það væri ekki nema ef að Víkingar næðu að fylgja eftir frábæru Evrópuævintýri sínu frá síðustu leiktíð og kæmust í 3. umferðina, sem spiluð er 7. og 14. ágúst, sem Stígur gæti mögulega spilað sína fyrstu Evrópuleiki í sumar.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Enski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Íslenski boltinn Dramatík í uppbótartíma Enski boltinn Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Enski boltinn Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ Sjá meira