Innlent

Leita týnds göngumanns

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Útkall barst upp úr klukkan níu.
Útkall barst upp úr klukkan níu. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins hafa verið kallaðar út til að leita týnds göngumanns við Esju. 

Þetta staðfestir Hinrik Wöhler, staðgengill upplýsingafulltrúa Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var sömuleiðis kölluð út vegna leitarinnar. 

Útkallið barst á tíunda tímanum en nánari upplýsingar gat Hinrik ekki veitt að svo stöddu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×